Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2015
108,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og falleg 3ja herbergja 108 fm útsýnisíbúð á þriðju hæð með aukinni lofthæð að hluta í lyftuhúsnæði við Naustavör 2 í Kópavogi. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu og sér geymslu í kjallara. Tvennar svalir eru á íbúðinni sem snúa í vestur og norður með miklu útsýni. Snyrtileg sameign og falleg lóð. Húsið er klætt að utan og byggt árið 2015 af BYGG ehf. Íbúðin getur verið laus fljótlega.Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin skráð 108,1 fm, þar af er sérgeymsla 11,2 fm. Sérmerkt stæði í bílageymslu er merkt 01B11. Búið er að gera ráðstafanir fyrir rafhleðslustöð.
Nánari lýsing:
Anddyri er með fataskáp og parketi á gólfi. Hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskápum og parketi á gólfi. Auka svefnherbergi er með fataskáp og parketi á gólfi. Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi og veggjum, stór sturta, innrétting og skápur. Stofa/borðstofa/eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting er vegleg, eikaráferð er á innréttingu og hvítt lakk á efri skápum. Innbyggður ofn og örbylgjuofn eru í eldhúsi. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar.
Falleg og snyrtileg lóð með gróðri. Lyfta er í stigagangi hússins. Mikið er af göngu- og hjólaleiðum er í Kársnesinu.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. maí. 2015
35.300.000 kr.
44.000.000 kr.
108.1 m²
407.031 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025