Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
100 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Lækjarbrekka, Syðri-Brú 805 Grímsnes-og Grafningshreppi. Hitaveita, glæsilegt útsýni. Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).

Lækjarbrekka er með möguleika á rekstrarleyfi sem hentar fyrir útleigu á sumarhúsi  en búið er að gera breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar þannig að kaupendur geta nýtt húsið fyrir rekstur/útleigu allan ársins hring.

Fasteignaland kynnir: Heilsárshús við Lækjarbrekku í landi Syðri-Brúar í Grímsnes og Grafningshreppi. Húsið er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 100 fm og stendur á 9.160 fm eignarlóð með glæsilegu útsýni. Hitaveita er í húsinu og er steypt plata með hitalögnum í gólfi. Húsið er nýtt og lítilsháttar frágangur eftir.  

Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).  
 
Nánari lýsing: Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skápaplássi.  Baðherbergi með flísum á gólfi, fallegri viðarinnréttingu og  flísalagðri sturtu. Þrjú herbergi með parketi á gólfum.  Eitt (hjónaherbergi) með útgengi út á austurhlið hússins.  Inn af hjónaherbergi er baðherbergi með flísum á gólfi, dökkri innréttingu og flísalagðri sturtu.  Þvottahús með flísum á gólfi.  Eldhús og stofa í sama rými með góðri lofthæð, flísum á gólfi og útgengi út á steypa suður verönd.  Eldhús með dökkri viðarinnréttingu.  Granit á borðum og vönduðum tækjum.
 
Fallegt útsýni er frá lóðinni. Steypt plata með hitalögn í. Hitaveita, tengi fyrir heitan pott.   Lokað svæði (símahlið).

Árgjald sumarhúsaeiganda á svæðinu er  kr. 40.000,- sem fer í viðhald á vegi og hliði. 

Þetta er glæsileg eign og vel um gengin með.  Góð aðkoma og næg bílastæði.  

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is

img
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Heimir Hafsteinn Eðvarðsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Heimir Hafsteinn Eðvarðsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.