Upplýsingar
Byggt 2004
139,3 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Fífumói 2, Selfossi. Í einkasölu.Um er að ræða mjög skemmtilegt og snyrtilegt parhús á góðum stað á Selfossi. Húsið er 139,3 fm að stærð en þar af er bílskúr 39,6 fm að stærð. Húsið er klætt að utan með Duropal en litað járn er á þaki. Að innan skiptist húsið í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús. Innkeyrsla er malbikuð en stétt upp að húsi er hellulögð. Snyrtileg verönd er á baklóð. Nýlegt harðparket á á gólfum. Reykskynjarar eru nýjir og samtengdir. Forhitari er á neysluvatni.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og þar er fataskápur.
Hol: Harðparket er á gólfi.
Eldhús: Harðparket á gólfi og þar er viðar innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Nýleg borðplata og tæki eru í eldhúsi.
Stofa: Harðparket á gólfi og þaðan er útgengt á verönd.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi og þar er góður fataskápur
Herbergi 2x: Harðparket er á gólfi og fataskápur er í öðru herberginu.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf en þar er innrétting með vask, upphengt salerni, sturtuklefi, baðker og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísalagt og þar er innrétting með tækjum í vinnuhæð. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Bílskúr: Flísalagður, álflekahurð með hurðaopnara. Útgengt er á baklóð úr bílskúr.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is