Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Vista
svg

43

svg

33  Skoðendur

svg

Skráð  2. júl. 2025

fjölbýlishús

Skipholt 1 (404)

105 Reykjavík

79.900.000 kr.

1.090.041 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522300

Fasteignamat

65.550.000 kr.

Brunabótamat

40.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
73,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 svefnh.

Lýsing

Háborg kynnir: Skipholt 1 - Nýlega endurbyggt hús. Íbúð 404.

Íbúð 404 er rúmgóð 2ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Forstofa með góðum skápum, eitt svefnherbergi (17,4 fm). Stórt bjart alrými með útgengi á suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 66,7 fm og geymsla í kjallara 6,6 fm. Örstutt göngufæri í matvöruverslun og niður á Hlemm, sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.

Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð.

Sjá á heimasíðu verkefnisins.

Allar nánari upplýsingar veita Þórir Helgi Sigvaldason lögm. og lgf. í síma 823-7170, eða á thorir@haborg.is, Þórunn Pálsdóttir lgf, s. 773-6000, thorunn@haborg.is, Jórunn Skúladóttir lgf., s. 845-8958, jorunn@haborg.is, og Katla Hanna Steed lgf., s. 822-1661 eða katla@haborg.is.

Húsið: Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

Hönnun: HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni, svo og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG. Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Staðsetning: Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni. Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H, auk þess sem ógjaldskyld stæði eru í nágrenninu, þ.á.m. í Skipholti. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.

 

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone