Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
svg

54

svg

42  Skoðendur

svg

Skráð  3. júl. 2025

fjölbýlishús

Asparskógar 18

300 Akranes

69.900.000 kr.

925.828 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519888

Fasteignamat

54.850.000 kr.

Brunabótamat

45.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
75,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 6. júlí 2025 kl. 15:00 til 15:30

Opið hús: Asparskógar 18, 300 Akranes, Íbúð merkt: 01 03 10. Eignin verður sýnd sunnudaginn 6. júlí 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Lýsing

Domusnova Borgarnesi og Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna íbúð 310, Asparskógar 18, 300 Akranes. Björt og falleg 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð og efstu hæð með stórum 22,1 fm. þaksvölum í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi.

EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR
** Bókið skoðun **

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Innan lóðar eru 32 bílastæði og þar af eru 14 hleðslustæði. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum ásamt gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta. 
 
Til að skoða og sjá nánar um eignir: Heimasíða - Asparskogar.is
Til að skoða skilalýsingu eigna: Skilalýsing - Asparskógar 18
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag 
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.

Íbúð 310 er skráð 75.5 fm. og er sérinngangur. Innan eignar er anddyri, stofa, eldhús, tvö herbergi og baðherbergi sem einnig er nýtt sem þvottarými. Stórar 22,1 fm. þaksvalir sem snúa í suð-austur og suð-vestur. Stæði í bílageymslu fylgir þessari eign.
* 3ja herbergja íbúð á 3. hæð og efstu hæð
(í þessum hluta)
* Stærð 75,5 fm.
* Stórar 22,1 fm. L-svalir sem snúa í suð-austur og suð-vestur.
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla
* Bílastæði merkt B-22 í bílageymslu


Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Gangur: Hvítur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS, neðri skápar eru brúnir að lit og efri skápar hvítir. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Útgengt út á L-laga 22,1 fm. svalir sem snúa í suð-austur og suð-vestur. Enginn önnur íbúð liggur að þessum hluta íbúðar og því gott næði.
Svefnherbergi I: Hvítur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Hvítur hvítur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi.

Bílageymsla: er í kjallara hússins. Aðkoma bifreiða um akstursramp og aðkoma gangandi frá sitthvorum enda stigahúss og um gönguhurð við ramp. Upphituð með lágu hitastigi/frostlaus. Vélræn loftræstingu og sjálfvirkt springler kerfi. Sjálfvirkur hurðaropnari er á hurð. Ein fjarstýring fylgir hverju bílastæði. LED lýsing í lofti
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans. Bílastæði við götu eru malbikuð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru hellulagðar stéttar.

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar)

** EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR **

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is

 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone