Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Helgi Bjartur Þorvarðarson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1981
svg
234,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Garðbraut 77, 250 Garður, birt stærð 234.4 fm.
Um er að ræða einstaklega fallegt og vel staðsett einbýlishús í Garðinum þar sem skóli íþróttamiðstöð og verslun eru í göngufæri.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, stofu/borðstofu og fjögur svefnherbergi ásamt bílskúr. Íbúð er í hluta bílskúrs.

** Auka íbúð með sérinngang (möguleiki á útleigu)
** Steypt innkeyrsla með hitalögn að hluta
** Fjögur svefnherbergi
** Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
** Frábær staðsetning, rétt við skóla, verslun og íþróttamiðstöð


Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 866-9954, tölvupóstur haukur@allt.is.

 
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð og með góðum skáp
Hol er parketlagt
Stofa/borðstofa er mjög stór og hefur parket á gólfi. Stofa tengist bæði holi og eldhúsi.
Eldhús hefur parket á gólfi, þar er hvít innrétting með flísar á milli skápa, ofn, helluborð og háfur. Inn af eldhúsi er geymsla/búr.
Baðherbergi hefur flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð hvít innrétting, sturtuaðstaða stúkuð af með gleri, upphengt salerni og handklæðaofn. 
Gangur er parketlagður
Svefnherbergin eru fjögur í eigninni, öll parketlögð og skápar eru í tveimur þeirra.
Bílskúr er fullbúinn og er hann mjög stór. Búið er að útbúa íbúð í hluta af bílskúr með sérinngang sem hægt er að leigja út.  
Þvottahús - aðstaða í bílskúr

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

img
Haukur Andreasson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone
img

Haukur Andreasson

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. jún. 2014
24.600.000 kr.
30.000.000 kr.
234.4 m²
127.986 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone

Haukur Andreasson