Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 91,9 m2, 3ja herbergja íbúð með fallegu útsýni á 2. hæð og bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Skyggnisbraut 26-28 í Úlfarsárdal í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu/gang, geymslu innan íbúðar, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Eignin er skráð 91,9 m2. Bílastæði í bílageymslu merkt B02 fylgir eigninni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur er með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með L-laga innréttingu og borðkrók við glugga, parket á gólfi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt og með innréttingu, walk-in sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Innrétting með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar með parketi á gólfi.
Bílastæði í bílageymslu merkt B02 fylgir eigninni.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla á bílaplani og einnig er búið að leggja fyrir hleðslustöð í bílageymslu.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 74.700.000,-
Verð kr. 69.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.