Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hátún 4

105 Reykjavík

61.900.000 kr.

847.945 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2009974

Fasteignamat

57.450.000 kr.

Brunabótamat

35.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
73 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu góða 3ja herbergja íbúð með svölum á 3ju hæð að Hátúni 4. Íbúðin er með eldhúsi og stofu í sameiginlegu rými og tveimur herbergjum, auk baðherbergis og geymslu á hæðinni. Stutt er í alla þjónustu í miðbænum og Nóatúni, íþróttasvæði Laugardalsins innan seilingar. Stutt er í skóla og leikskóla og góða aðkoma að stofnbrautum, Sæbraut og Miklubraut. Næsta árs fasteignamat er kr. 62.750.000.

Eldhús og stofa eru í einu rými með flísum á gólfi, ágæt eldhúsinnrétting. Útgengt er úr stofu á svalir sem snúa í norðvestur.
Baðherbergið er fremur lítið, sturtuklefi.
Hol er með flísum á gólfi og er lítill geymsluskápur þar.
Tvö herbergi, bæði með góðu skápaplássi.
Ofnar eru upprunalegir pottofnar. Skipt hefur verið um glugga á austurhlið en ekki norður og vesturhlið. 
Í sameign er sameiginlegt þvottahús  og þurrkherbergi með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins með sjáfsalafyrirkomulagi. Hjóla- og vagnageymsla auk lítillar sérgeymslu í sameign merkt 2A.

Væntanlegir kaupendur hvattir til að skoða eignina vel áður en tilboð er gert í samræmi við skoðunarskyldu kaupenda.

Smellið hér til að fá söluyfirlit

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone