Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
257,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna einstakt 257,8 fm einbýlishús innst í botnlanga með stórkostlegu útsýni á rólegum, barnvænum og eftirsóttum stað við Jöklalind í Kópavogi. Samkvæmt FMR er húsið skráð 257,8 fm og þar af bílskúr 36,4 fm. Eignin telur forstofu, hol, tvö mjög rúmgóð herbergi, tvö baðherbergi, rúmgott eldhús, tvær stofur.
Þrefalt gler er í öllum gluggum með áli að utan og inn fyrir veðurkápu og með smálands furu að innan. Útgengt er úr öllum vistaverum út í garð. Mjög falleg gólfefni eru á öllu húsinu (náttúrusteinn og gegnheil eik). Gólfhiti er í öllum rýmum nema þar sem er parket. Lofthreinsibúnaður er í húsinu. Húsið er steinsteypt en að hluta klætt með sedrusvið.
Ekkert auglýst opið hús verður í eigninni heldur er fólk beðið að bóka skoðun í síma 861-8466 eða oc@primafasteignir.is

 
Forstofan er rúmgóð með náttúruflísum á gólfi og gestasnyrtingu með sturtu.
Svefnherbergi er mjög rúmgott 18fm og með parketi á gólfi.
Hol með náttúruflísum á gólfi. Þar er einnig lítið fataherbergi.
Þvottahús með náttúruflísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.
Hjónasvítan er einstaklega rúmgóð, með litlu fataherbergi innaf. í hjónasvítunni eru mjög góðir skápar. Gengið er út í garð úr hjónaherberginu. Nýuppgert baðherbergi með tveimur ”walk in” sturtum.
Stofa vatnsgufu-arinn, parket á gólfi, niðurtekin loft með hljóðeinangrun. Útgengt er í garð.
Eldhús er mjög rúmgott með náttúruflísum á gólfi og nýrri innréttingu. Borðstofa í eldhúsi. Útgengt er út í garð úr borðstofu..
Stofa: í efri stofuna er gengið upp stiga en hún er staðsett er fyrir ofan eldhúsið og er með arni. Parket á gólfi. Útgengt er á stórar þaksvalir með einstöku útsýni.
Þaksvalir mjög rúmgóðar þaksvalir með frábæru útsýni, hægt að setja heitan pott á svalirnar.
Bílskúr með epoxy á gólfi.

Einstaklega fallegt og vandað hús sem vert er að skoða. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með múrklæðningu og setrusviðarklæðningu. Húsið hefur fengið
gott viðhald á undanförnum árum.

Húsið var allt tekið í gegni árið 2020. Þetta er það helsta sem var gert.
Eldhús: Allar innréttingar nýjar frá Birninum. Öll tæki endurnýjuð frá AEG. Allt innlagnaefni endurnýjað GIRA. Gluggi hækkaður
og endurnýjaður. Innfeld ljós frá SG.
Baðherbergi: Baðherbergi flutt milli herbergja og er nú í barnaherbergi á vinstri hönd þegar komið er inn á gang hjónasvítu.
Innrétting sérsmíðuð frá Birninnum, Innbyggð sturtutæki og handklæðaofn frá Tengi af gerðinni VOLA.
Allt flísalagt í hólf og gólf af Nóa flísara. Vaskar og klóset úr Tengi. Blöndunartæki við vaska frá BYKO. Öll lagnavinna
unnin af GG lögnum.
Hjónasvíta: Innréttingar sérsmíðaðar frá Birninum. Gólfefni endurnýjað frá Agli Árnasyni. Kastarabrautir frá SG. Innfeld ljós
frá SG.
Fataherbergi með opna innréttingu frá IKEA.
Þak yfir hjónasvítu: Settur pvc dúkur beint á stein, svo einangrun. Aftur PVC dúkur. Flísar lagðar á undirklerfi
frá Álfaborg. Flísar einnig frá Álfaborg.
Bílskúr: Gólf yfirborðsmeðhöndlað með epoxy efni
Öll ljós endurnýjuð.
Gólfefni í stofum og herbergi við anddyri slípað upp og hvíttað. Loft yfir stofu 1. hæðar klætt með hljóðdúk.


Frábær staðsetning í vinsælu hverfi. Grunnskóli og tveir leikskólar eru í göngufæri.  
Upphitað bílastæði er fyrir 5 bíla og upphitað svæði fyrir utan húsið er ca 100 fm.


Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. feb. 2020
103.100.000 kr.
102.000.000 kr.
257.8 m²
395.656 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6