Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
svg

3491

svg

2606  Skoðendur

svg

Skráð  16. júl. 2025

einbýlishús

Stekkjartún 2

600 Akureyri

143.900.000 kr.

659.185 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2296667

Fasteignamat

116.000.000 kr.

Brunabótamat

111.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
218,3 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing



EIGNAVER 460 6060

Stekkjartún 2 Akureyri.                                                                

Glæsilegt, sérlega vandað, opið og bjart 5 herbergja einbýlishús á einni hæð í Naustahverfi á Akureyri, samtals 218,3 fm. að stærð, þar af er bílskúr 38,4 fm.


Eignin skiptist í forstofu, rúmgott hol, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu í opnu rými. Loft er upptekið með innfelldri lýsingu.  Annar inngangur er bakdyramegin og þar innaf er þvottahús með góðum innréttingum. Kvistað eikarparket er á gólfum nema á eldhúsi, baðherbergjum og í forstofu þar eru ljósar flísar. Bílskúr er með flísum á gólfi og nýlegri rafmagnshurð. Útgangur á mjög stóran sólpall sunnan við hús frá bílskúr þar er heitur pottur.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp, sérsmíðuðum innréttingum og ljósum flísum á gólfi.
Eldhús er með  kvarts steini á bekkjum, milli skápa og á eyju (2017). Sérsmíðuð spónlögð eikarinnrétting,  span AEG helluborð,ný vifta (2017).  AEG  ofn  (2016) í góðri vinnuhæð og gert ráð fyrir amerískum ísskáp í innréttingu. Vaskur og blöndunartæki í eldhúsi eru nýleg. Ljósar flísar á gólfi. 
Stofa, borðstofa og eldhús liggja saman. Um er að ræða opið rými með stórum gluggum og tvöfaldri hurð út á mjög stóra verönd. Einnig er hurð úr stofu út á verönd að vestan. Innfelld halogen lýsing í lofti.
Baðherbergi eru tvö bæði með sturtu upphengdu wc, handklæðaofni, flísum í hólf og gólf og spónlagðar eikarinnréttingar, baðkar í öðru þeirra. 
Svefnherbergi eru fjögur, öll með góðum skápum og eikarparketi á gólfum. 
Þvottahús er inn af forstofu sem er á norðurhlið hússins. Þar er góð innrétting með hólfi fyrir þvottavél og þurkara í góðri vinnuhæð. 

Annað:
- Lóðin er hönnuð af Ingvari Ívarssyni hjá Landslagi, landslagsarkítektum og frágangur hennar í höndum skrúðgarðyrkjumeistara. 
- Kvarts steinn er í öllum gluggakistum. 
- Kvartsteinninn í húsinu er sérpantaður mattur steinn.
- Gólfhiti í öllu húsinu.
- Hitalagnir í bílaplani, stétt fyrir framan hús og í palli á bakvið húsið.
- Mjög stór sólpallur, skjólveggir og steyptar stéttar eru umhverfis húsið. Vandaðir skjólveggir. 
- Steypt bílaplan fyrir allt að fjóra bíla 
- Innfelld lýsing í þakskeggi hússins sem var klætt með gegnheilum maghogny við árið 2017
- Byggingarár húss skv. Þjóðskrá er 2007 en það var ekki innréttað fyrr en 2013.
- Ný rúmgóð köld útigeymsla við húsið klædd lerki. 
- Auðvelt að setja upp arinn í stofu. (upphaflega var gert ráð fyrir því )
- Geymsluloft er yfir hluta íbúðar. Fellistigi í þvottahúsi. 
                   
 
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. apr. 2022
80.250.000 kr.
107.000.000 kr.
218.3 m²
490.151 kr.
26. júl. 2018
60.150.000 kr.
77.500.000 kr.
218.3 m²
355.016 kr.
7. feb. 2018
60.150.000 kr.
74.000.000 kr.
218.3 m²
338.983 kr.
22. jan. 2016
50.800.000 kr.
48.000.000 kr.
218.3 m²
219.881 kr.
24. okt. 2013
25.700.000 kr.
38.000.000 kr.
218.3 m²
174.072 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone