Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1990
120,2 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Nýtt á skrá! Grundarhús 12 Reykjavík - Bókið skoðun
Nánari uppl. hjá Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala / heimir@fastlind.is / 849-0672
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega 120,2 fermetra 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) með sérinngangi af opnum svalagangi við Grundarhús 12 í Reykjavík. Góðar svalir til suðurs inn í bakgarð hússins. Rúmgott þvottaherbergi innan íbúðar og gestasalerni á aðalhæð. Þrjú til fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni.
Íbúðin er virkilega falleg og hefur verið endurnýjuð að hluta. M.a. var baðherbergi, gestasnyrting og öll gólfefni aðalhæðar endurnýjuð árið 2022. Þá voru þakgluggar endurnýjaðir fyrir u.þ.b. 2 árum síðan og svalir á húsinu endurnýjaðar árið 2025.
Húsið er byggt árið 1990 með fallega frágenginni lóð. Hellulagðrar stéttir og sameiginleg bílastæði fyrir framan hús.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Húsahverfi í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins.
Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi.
Þvottaherbergi/geymsla: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og glugga til norðurs. Vinnuborð, vaskur og hillur.
Gestasalerni: Var endurnýjað á smekklegan máta árið 2022. Flísar á gólfi og hluta veggja. Upphengt salerni, innrétting við vask og skápur.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfum. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs og útgengi á svalir.
Svalir: Eru endurnýjaðar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og góðri eldhúsinnréttingu. Gluggi til norðurs og borðkrókur. Electrolux bakaraofn, keramik hellborð og flísar á milli skápa.
Efri hæð: Gengið er upp viðarstiga frá holi/stofu aðalhæðar.
Hol: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi: Var endurnýjað á virkilega smekklegan máta árið 2022. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili og handklæðaofn. Baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask með fallegum spegli með baklýsingu fyrir ofan. Upphengt salerni og Velux þakglugga.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og Velux þakglugga.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og Velux þakglugga.
Svefnherbergi III (hjónaherbergi): Með harðparketi á gólfi, skápum og tveimur Velux þakgluggum. Útsýni að Esjunni.
Risloft/svefnherbergi IV: Gengið er upp viðarstiga frá holi 2. hæðar upp á gott risloft með Velux þakglugga. Hægt að nýta sem fjórða svefnherbergið eða sem fjölskyldu- og tómstundaherbergi.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð hússins. Sérinngangur að framanverðu. Epoxy gólf, hjólasnagar og gluggi til norðurs.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. mar. 2016
32.250.000 kr.
36.500.000 kr.
120.2 m²
303.661 kr.
28. okt. 2015
29.000.000 kr.
35.500.000 kr.
120.2 m²
295.341 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025