Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Háaleitisbraut 103

108 Reykjavík

96.500.000 kr.

605.775 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2015087

Fasteignamat

82.850.000 kr.

Brunabótamat

67.440.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1964
svg
159,3 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Svalir

Lýsing

Vel skipulögð og endurnýjuð 159,3fm endaíbúð á 2. h. á eftirsóttum stað í hverfi 108. Eigninni fylgir 23,5fm bílskúr m. millilofti. 2 bílastæði. Mjög barnvænt og öruggt umhverfi innarlega í botnlanga.


Mikið endurnýjuð (2025) endaíbúð með tvennum svölum, íbúð og gluggar ný málaðir, nýtt harðparket og ný gólfhitalögn í öllum herbergjum. Hitastýring er sjálfstæð fyrir íbúðina og nýr þrýstijafnari á hæðinni. Ný rafmagnstafla og nýir tenglar og nýir rofar. Ný eldhúsinnrétting. Hægt er að breyta skipulagi í íbúðinni á auðveldan hátt og fjölga herbergjum í 5 svefnherbergi eða fækka og stækka stofuna.

Umhverfið er fallegt og rúmt til allra átta. Stór sameiginleg lóð með leiksvæði að framan og aftan við blokkina í fallegu umhverfi trjáa. Útsýni er yfir stóran hluta höfuðborgarsvæðisins, út á sund og til fjalla bæði í SV,V,N og NA. Mjög stutt er í fjölbreytta þjónustu á 108 svæðinu og gott aðgengi að stofnbrautum.

Þrívíddarmynd: Á meðfylgjandi hlekk er að finna þrívíddarmyndir af íbúð og bílskúr áður en framkvæmdum lauk https://my.matterport.com/show/?m=K1Qn1XRKMAC

Eignin skiptist í :Anddyri, eldhús, sér þvottahús (herbergi) og litla geymslu/búr, borðstofu og samliggjandi stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi. Engar innihurðir eru í íbúðinni og öll dyraop eru tilbúin fyrir uppsetningu.1)

Anddyri: Er rúmgott og opið með fataskáp.
Eldhús: Ný eldhúsinnrétting, nýr vaskur og nýtt blöndunartæki. Helluborð og ofn.
Þvottahús (herbergi): Inn af eldhúsi og lítil geymsla/búr.
Stofa og borðstofa: Rúmgóðar og bjartar, gengið er úr stofu á nýmálaðar svalir.
Svefnherbergisgangur: Gengið út á svalir.
#1 Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum eldri fataskáp.
#2 Barnaherbergi: Rúmgott án skápa.
#3/4 Barnaherbergi: Sameinað í eitt rúmgott, án skápa.
Baðherbergi: Flísalagt, gólfhiti, ný baðskápseining með vaski og blöndunartæki, nýlegt klósett og góð sturta. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslur: Sérgeymsla í kjallara 5,3 fm., innbyggður geymsluskápur á stigapalli við inngang sem tilheyrir íbúðinni, með fataslá og hillum til lofts. Læsing á skápum. Hjólageymsla í sameign í kjallara.
Bílastæði: Stæði eru fyrir framan inngang og einnig fyrir framan bílskúr.
Bílskúr : Hiti, rafmagn og kalt vatn. Geymsluloft yfir hluta bílskúrs.
Gluggar: Gluggakarmar nýmálaðir en matsatriði er hvort komið sé að glerskiptum.
Raflagnir: Nýir rofar og tenglar í íbúð. Ný rafmagnstafla með lekaliða. Allt rafmagn yfirfarið.
Sameign: Nýtlegt dren lagt um blokkina (2023). Hitalögn í stétt. Ástand blokkar í góðu lagi samkvæmt upplýsingum frá húsfélaginu.

1)Getum útvegað verktaka til að setja upp hurðir ef þess er óskað.

Mjög góð eign á góðum stað. Hagstætt verð, aðeins 605.775 kr/fm.
Leikskólar grunnskólar og framhaldsskólar í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir: Agnar Kofoed-Hansen, fjármálaráðgjafi, S:8964224, agnarkh@gmail.com

Frágangur skjala verður í höndum óháðs aðila, löggilts fasteignasala eða lögmanns


Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð



Vegna auglýsingar á vefsvæðinu fasteignir.is:
Eigendur auglýsa eign sína sjálfir án milligöngu og finna til kaupendur. Eigendur tryggja að löggiltur fasteignasali (eða aðili með löggildingu til að annast milligöngu um sölu fasteigna og skipa) annist milligöngu þegar kemur að kauptilboði og / eða kaupsamningsgerð vegna auglýsingar á vefsvæði Vísis (fasteignir.is). Þessi aðili mun þá sjá um skjalagerð, þ.m.t. söluyfirlit, kauptilboð, kaupsamning, veðleyfi og afsal, eftir því sem við á hverju sinni, og sjá um að annast viðskiptin í samræmi við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Þannig er tryggt að varnir gegn peningaþvætti séu virtar og að réttarstaða kaupanda og seljanda er glögg.

Eigendur geta nýtt sér umrædda þjónustu hjá samstarfsaðila e-fasteigna, PRIMA fasteignasölu, en það er ekki skilyrði fyrir notkun kerfisins og stendur aðilum aðeins til boða ef hún hentar öllum hlutaðeigandi.
Verðskrá þjónustunnar er aðgengileg á vef e-fasteigna.

e-fasteignir | Fasteignakerfi

e-fasteignir | Fasteignakerfi

Bjarkarás 3a, 210 Garðabær
phone
e-fasteignir | Fasteignakerfi

e-fasteignir | Fasteignakerfi

Bjarkarás 3a, 210 Garðabær
phone