Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
svg

41

svg

38  Skoðendur

svg

Skráð  18. júl. 2025

fjölbýlishús

AUSTURMÖRK 32A -202

810 Hveragerði

51.900.000 kr.

856.436 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532257

Fasteignamat

19.150.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
60,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing


BYR fasteignasala kynnir AUSTURMÖRK 32A íbúð 202, 810 Hveragerði. Ný tveggja herbergja íbúð á efri hæð í nýju fjölbýlishúsi í Tívolíbyggð Hveragerði. 
Húsið er vel staðsett í miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, útivist og ýmiskonar afþreyingu, sjá nánar hér.

TIL AFHENDINGAR ÁGÚST 2025.  VELKOMIN Í HVERAGERÐI!
BYR FASTEIGNASALA | 483-5800 | byr@byrfasteignasala.is |


Austurmörk 32A - Íbúð 202 skiptist í íbúð 57.6 m² og geymslu 3.0 m² samtals 60.6 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS. 
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla. 

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá alrými út á svalir til suðurs. 
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, heimilistæki frá AEG spanhelluborð og gufugleypir, ofn, kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. 
Vaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsi, innbyggð lýsing undir efri skápum. 
Tvö svefnherbergi bæði með fataskápum.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi. 
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu seljanda. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar frá Selós, eikar melamin efni að utan. Öll heimilstæki eru frá AEG, Innbyggður kæli- og frystiskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn, spanhelluborð fellt í plötu, vifta yfir. Blöndunartæki frá Grohe.  Flísar verða á gólfum baðherbergja, öðrum gólfum er skilað án gólfefna. 
Íbúð er upphituð með ofnum á lokuðu kerfi með varmaskipti. Gólfhiti er í gólfi á baðherbergi. Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í íbúð. 

Austurmörk 32 er 9 íbúða, tveggja hæða hús. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með ál-trapísuklæðningu frá Málmtækni.
Þakplata er staðsteypt frágengið með þakdúk frá Sika og þakmöl. Gluggar og hurðar eru álklæddir timburgluggar frá Ideal Combi.
Lóð er frágengin með malbikuðum bílastæðum og stígum. Gengið er inn í íbúðir af opnum svalagöngum.
Yfirborð við inngang sem og sérafnotareiti er hellulagt. Önnur svæði eru frágengin með grasi. 
Sameiginleg bílastæði eru á lóð. Tengipunktar fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Sameiginleg sorpskýli eru á lóð. 

Aðalverktaki JÁVERK ehf. T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Burðarþolshönnun og lagnahönnun Verkfræðistofa Reykjavíkur. Raflagnahönnun Voltorka ehf.
Tívólibyggð samanstendur af sjö fjöleignarhúsum með samtals 80 íbúðum. Smellið hér fyrir heimasiðu Tívolíbyggðar.

Íbúðin er byggð samkvæmt kröfum Umhverfisstofnunar til að hljóta Svansvottun að framkvæmdum loknum.
Í svansvottuðum byggingum hefur allt byggingarefni sem sett er í bygginguna verið samþykkt og uppfyllir kröfur svansins.
Svansvottaðar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfið og heilsuna, enda eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni.
Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm. 
Smellið hér fyrir upplýsingar um Svansvottun.

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.
Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.
 
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði