Opið hús á Fögruvöllum 3, þriðjudaginn 29. júlí frá kl. 16:30 - 17:00. Verið velkomin :)
Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteignasali í síma 899 9787, eða sb@gimli.is
* Smelltu hér fyrir myndband af Fögurvöllum 3 *
Lýsing á íbúð 101:
Íbúð á jarðhæð með sérinngangi, sérafnotareiti í garði fyrir sólpall, 2 svefnherbergi,baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-7915, birt stærð 89.5 fm.
Forstofa með fataskápum og flísalögðu gólfi
Herbergi 1, rúmgott ( 9,3fm) forstofuherbergi með skápum.
Herbergi 2, stórt (13,1 fm) hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum.
Stór stofa með útgengi út á suður verönd.
Eldhús með fallegri innréttingu frá HTH
Baðherbergi með flísum á gólfi og kringum sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.
Þessi íbúð er endaíbúð með gluggum á þrjá vegu og því sérlega björt og skemmtileg.
Íbúðin er afhent án megin gólfefna nema með flísum í anddyri og baðherbergjum.
* Frábær staðsetning
* Sérafnotareitur á verönd.
* Geymslur innan íbúða
* Innréttingar frá HTH
* Vönduð tæki frá AEG (Ormsson)
* Speglaskápur er fyrir ofan baðherbergisvask
* Þreplausar, flísalagðar sturtur með hertu sturtugleri
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af íbúðinni
Nánari upplýsingar veita:
* Sigþór Bragason, löggiltur fasteignasali í síma 899 9787, eða sb@gimli.is
* Herdís Valb. löggiltur fasteignasali í síma: 694-6166 eða herdis@gimli.is
* Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða inga@gimli.is
* Erla Dís Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 6987088 eða erladis@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...