Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

46

svg

42  Skoðendur

svg

Skráð  24. júl. 2025

fjölbýlishús

Áshamar 52

221 Hafnarfjörður

89.900.000 kr.

866.089 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2526613

Fasteignamat

71.700.000 kr.

Brunabótamat

62.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
103,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

***FIMM HERBERGJA ÍBÚÐ***
Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna: Góða og fallega innréttaða 103,8 m2 fimm herbergja íbúð(307) á þriðju hæð í nýlega byggðu(2023) lyftuhúsi. Sérgeymsla er í sameign. Sameiginlegur inngangur er inn í fjölbýlishúsið en sérinngangur er inn í íbúðina af svölum. Nýtt parket frá Parka er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og þvottahús en þar eru fallegar 60x60 gráleitar flísar. Gólfsíðir gluggar með vönduðum gardínum frá Z-brautum, gólfhiti, klæddar og stílhreinar stórar svalir, fallegar innréttingar og nægt skápapláss þar sem eigendur hafa bætt miklu við. Eldhús með eyju, borðhella, bakaraofn, innréttaður ísskápur og gufugleypir. Uppþvottavél inn í innréttingu. Gott hirslupláss. Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, með glugga, stórri sturtu, gólfhita, fallegum spegli og stórum skáp Þvottahúsið er inn af baðherberginu þar sem eigendur hafa aukið skápaplássið og útbúið snyrtihorn með speglum og ljósi. Um er að ræða afar snyrtilega og vel útbúna íbúð með góðu og auknu skápaplássi, fallegum gardínum og stórum klæddum 29m2 svölum með útsýni til austurs. Þar sem íbúðin er L-laga að þá skapast mikill vinnufriður á milli staða í íbúðinni. Húsfélagið er vel rekið þar sem búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir átta rafmagnsbíla. Seljendur og fasteignasalar tengjast fjölskylduböndum. 
Smelltu hér til að sjá myndband.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa/hol. Parket á gólfi og stór fataskápur.
Gangur. Parket á gólfi. Fata- og skóskápar. Eigendur hafa bætt við skápum. 
Stofa/borðstofa. Björt með stórum gluggum. Útgengt á 29m2 L-laga svalir sem snúa til austurs. Fallegt útsýni. Stórir, gólfsíðir gluggar með fallegum sérsniðnum gardínum frá Z-brautum. 
Eldhús. Uppþvottavél og ísskápur innréttuð. Eyja með Span-helluborði, bakaraofni og háfi. Eigendur hafa bætt við miklu skápaplássi. 
Hjónaherbergi. Rúmgott hjónaherbergi með stórum skápum og parketi á gólfi. Útgengt á svalir. Eigendur hafa bætt við miklu skápaplássi. 
Barnaherbergi. Þrjú parketlögð svefnherbergi öll með skápum og parketi á gólfi. Eigendur færðu fataskápinn svo herbergið myndi nýtast betur. 
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með glugga. Gráar 60x60 flísar á veggjum og á gólfi. Stór og góð sturta. Góðar innréttingar. Eigendur hafa sett upp spegla og aukið við skápaplássið. Baðherbergið með gólfhita, handklæðaofni og upphengdu salerni. 
Þvottahús. Innaf baðherbergi. Spegill með ljósi og skápar sem eigendur hafa sett upp. 
Sérgeymsla. Sérgeymsla er í sameign í kjallara hússins. 
Sameign. Vagna og hjólageymsla er í kjallara hússins. 
Bílastæði. Húsfélagið hefur sett upp 8 stæði fyrir rafmagnshleðslur. Bílastæðin eru sameiginleg. Fjögur stæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið. 
Húsfélagið: Öflugt húsfélag er starfrækt í húsinu og í góðu samstarfi við Áshamar 54. Húsfélagið er að vinna í afmarka bílastæðin með hvítum línum svo að plássið nýtist betur. Eins er verið að vinna í að halda sameigninni fallegri og góðri. Búið er að setja upp rafhleðslustöðvar fyrir átta rafmagnsbíla.  
Þjónusta: Stutt í skóla, leikskóla og þjónustu. Nýr leikskóli í næstu götu. Skarðshlíðarskóli og leikskóli eu í 10 mínútna gönguleið frá. Hraunvallaskóli og leikskóli eru í 5 mín akstri frá. Góðar gönguleiðir og skemmtileg útivistarsvæði eru víða í kring eins og Hvaleyrarvatn. Stutt er í verslanir og aðra þjónustu. Eins er fljótlegt að fara á flugvöllinn í Keflavík úr Hamranesinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, í síma 623-1717 - svavar@fstorg.is.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. nóv. 2023
61.000.000 kr.
79.000.000 kr.
103.8 m²
761.079 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone