Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Hafnarstræti 26c eign 101

600 Akureyri

44.900.000 kr.

878.669 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2367629

Fasteignamat

38.050.000 kr.

Brunabótamat

29.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
51,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Hafnarstræti 26c íbúð 101 - Góð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í fjölbýli í Innbænum  - stærð 51,1 m²


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu auk sér geymslu í sameign

Forstofan er með dökku vínylparketi á gólfi og einföldum fataskáp.
Í eldhúsi er ljós háglans innrétting með bekkplötu úr ljósum steini og efri skápum úr hnotu. Í eldhúsinu má finna Gorenje spanhelluborð, ofn og viftu, ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Ljósar flísar eru milli skápa.
Stofan er með dökku vínylparketi á gólfi og innfelldri lýsingu í lofti. Þar er rennihurð og útgengt á steypta austur verödn, með útsýni út á pollinn. 
Svefnherbergið er með dökku vínylparketi á gólfi og tvöföldum skáp með rennihurðum. 
Á baðherbergi eru ljósar flísar á veggjum og gólfi, ljós innrétting með neðri og efri skápum, upphengt wc, sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í sér geymslu eru hillur og opnanlegur gluggi. Geymslan er skráð 2,6 m² að stærð, skv. teikningum.

Annað
- Innihurðar eru hvítar
- Mjög gott aðgengi er að íbúðinni, bílastæði er fyrir framan hana.
- Húsinu Hafnarstræti 26c fylgir sameiginlegt smáhýsi 18,5 m² að stærð, fyrir hjól og vagna. 
- Eignin er laus til afhendingar um miðjan ágúst.
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. feb. 2018
1.470.000 kr.
22.900.000 kr.
51.1 m²
448.141 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone