Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 93,9fm. og þar af er geymsla skráð 7,6fm. Bílastæði er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður kr. 72.700.000.
Lýsing eignar:
Forstofa með góðu skápaplássi, fatahengi og flísum á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri eikarinnréttingu, flisar á milli efri og neðri skápa, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi. Eldhús er í opnu rými við rúmgóða borðstofu/stofu.
Stofa / borðsstofa björt og rúmgóð með stórum gluggum og parket á gólfi. Úgengt er út á rúmgóða afgirta verönd með fallegum skjólveggjum.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi með parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, upphengt salerni og flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt gólf.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins og er skráð 7,6 fm.
Sér bílastæði íbúðar er í bílastæðahúsi merkt B 16 og lagt er fyrir bílahleðslustöð í stæðinu.
Á jarðhæð hússins er hjóla og vagnageymsla.
Sameign hússins er öll hin snyrtilegasta, steinteppi á flestum gólfum, máluð gólf í hjóla- og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.