Lýsing
Miklaborg kynnir: 86,5 fm þriggja herbergja íbúð með sérinngangi við Suðurgötu 9 í miðbæ Reykjavíkur. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Nánari lýsing eignar.
Komið er inn í forstofu með fataskáp. Stofa með glugga til vesturs. . Eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Eldhús með ljjósri innréttingu með ofni, helluborði og háf og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Hjónaherbergi með fataskáp og útgengi út í port, baka til. Barnaherbergi með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með vask, upphengdu salerni, sturtuklefa með glerskilrúmi , handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nýlegt parket er á íbúðinni.
Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri hjóla og vagna geymslu og sameiginlegu þvottahúsi.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is