Opið hús: Sjónarvegur 3, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 12. ágúst 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
og sérstæði í bílageymslu.
Mjög falleg eign í Urriðaholtinu sem vert er að skoða
*SMELLTU HÉRNA TIL AÐ SJÁ VÍDEÓ AF EIGNINNI*
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 94,6 fm þar af er sérgeymsla 4,3 fm
Nánari lýsing:
Forstofan er með parket á gólfi.
Stofan er með fallegu útsýni, suðurvestursvölum og parket á gólfi.
Eldhús í sameiginlegu rými með stofunni. Vönduð innrétting frá HTH og góðum tækjum frá AEG, innbyggð uppþvottavél
og ísskápur fylgja.
Eldhúseyja er með kvarssteini á borði og parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með skápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi er með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er góðri innréttingu, handklæðaofn, sturtuklefi og er gluggi á baðherbergi. Flísalagt bæði gólf og veggir
Þvottahús er við hlið á forstofu flísalagt með góðri innréttingu og skóskáp.
Sérgeymsla er í sameign.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er við neðri inngang að húsinu.
Flestar innréttingar eru frá HTH. Fataskápar hvítlakkaðir en innréttingar á baði og eldhúsi eru grálakkaðar.
Borðplötur eru úr ljósum kvarsstein og heimilistæki eru frá AEG.
Sérmerkt stæði í sex stæða bílageymslu á fyrstu hæð tilheyrir íbúðinni.
Búið er að leggja fyrir hleðslustöðvum í bílakjallaranum.
Fallegt tíu íbúða álklætt lyftuhús frá 2020.
Íbúðin er vel staðsett í þessu vinsæla nýja hverfi í Garðabæ og stutt í skóla, leikskóla, verslun, golfvelli og náttúruparadísina allt í kring.
Nánari upplýsingar veitir: Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á inga@gimli.is eða gimli@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...