Lýsing
*** Bókið skoðun HÉR ***
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með góðum skáp. Parket á gólfi.
Þvottahús: Gengið inn í þvottahús frá forstofu. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð Nobilia innrétting frá GKS innréttingum, innbyggður ísskápur með frysti. Veggofn í vinnuhæð, eyja með span helluborði, háfi og setuplássi.
Stofa/borðstofa: Bjart og rúmgott miðrými, innbyggð ljós að hluta. Útgengi út á sólríkar suður svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi II: Rúmgott, tveir gluggar, góðir fataskápar, parket á gólfi.
Herbergi III: Rúmgott, góðir fataskápar, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt bæði gólf og veggir. Sturta aðskilin með glervegg. Létt hvít innrétting undir vaskborði. Upphengt salerni. Handklæðaofn.
Bílastæðahús ásamt bílskúr: Bílgeymsla er lokuð og upphituð með loftræstingu. Aftan við sérbílastæði í bílageymslu er lokaður bílskúr sem fylgir eigninni. Því eru um að ræða tvö stæði fyrir bíla. Inn af bílskúr er rúmgóð geymsla. Hleðslustöð.
Hér er um að ræða virkilega fallega eign með vönduðum innréttingum og gólfefnum. Róleg staðsetning. Fallegur vel hannaður lokaður og barnvænn inngarður með leiktækjum sem gefur húsinu skemmtilegan blæ. Húsið er vel staðsett, stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla og háskóla. Miðbæinn í göngufæri og örstutt í ósnortna náttúru í Öskjuhlíð, Nauthólsvík og nágrenni. Íþróttaaðstaða Vals á Hlíðarenda í göngufæri. Fasteignamat 2026 kr 119,2 milj.
Smyrilshlíð 16 er eign sem vert er að skoða. Glæsilegt fjölbýlishús á fimm hæðum með samtals14 íbúðum, auk kjallara með sérgeymslum og bílastæðum og bílskúrum þar sem við á. Byggingaraðli er DALHÚS. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Húsið er álklætt og viðhaldslítið með ál/tré gluggum, einangrað að utan og álklætt. Póstkassar og mynddyrasímar í anddyri. Hitalögn í gagnstéttum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.