Opið hús: Tröllateigur 33, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 12. ágúst 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 165,5 m2 endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Tröllateig 33 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 165,5 m2, þar af raðhús 139,5 m2 og bílskúr 26,0 m2. Eignin skiptist í: Neðri hæð: Forstofa, baðherbergi, bílskúr, þvottahús, eldhús, stofa og borðstofa. Efri hæð: Fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Stór timburverönd með heitum potti, garður og svalir í suðurátt. Hellulagt bílaplan. Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.
Eignin hefur fengið talsverðar endurbætur en skv. eiganda var:
Árið 2022: Ný eldhúsinnrétting frá HTH ásamt mjög vönduðum eldhústækjum frá AEG. Steinn (Quartzite) á borðum og bekkjum frá S.Helgason. Nýtt parket lagt í íbúð. Nýjar innihurðar. Nýir skápar í barnaherbergi. Nýr sturtuklefi og innréttingar á baðherbergi niðri.
Árið 2023: Nýr pallur og heitur pottur settur upp.
Árið 2024: Plejd stýrikerfi sett upp fyrir ljós ásamt nýjum rofum. Shelly snjallstýring á heitapotti – hægt að kveikja og slökkva með appi. Nýtt fataherbergi frá HTH í hjónaherbergi. Ný bílskúrshurð sett upp. Skipt um þakdúk á svölum – PVC dúkur skipt út fyrir bræddan þakpappa.
Árið 2025: Nýjar þökur lagðar í kringum pallinn.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Baðherbergi nr. 1 er með vegghengdu salerni, sturtuklefa og skolvask. Er innaf forstofu.
Þvottahús er með skáp og flísum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd í suðurátt með heitum potti. Þaðan er aðgengi út í garð.
Eldhús er með fallegri innréttingu frá HTH og eyju. Steinn á borðum (Quartzite) frá S.Helgason. Í innréttingu er spanhelluborð, tveir ofnar, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og niðurfelldur vaskur.
Bílskúr er með flísum á gólfi og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Er skráður 26,0 m2.
Efri hæð:
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataherbergi. Úr herbergi er gengið út á svalir í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu, baðkari, vegghengdu salerni og handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 120.400.000.-
Verð kr. 133.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.