Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason

Katla Hanna Steed

Jórunn Skúladóttir

Þórunn Pálsdóttir

Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
66,9 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Lyfta
Lýsing
Háborg fasteignasala kynnir til sölu bjarta og hlýlega tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í nýlegu lyftuhúsi við Bæjarháls 98 í Reykjavík. Íbúðin er glæsileg og vel skipulögð, með mikilli birtu og fallegu útsýni í rólegu og eftirsóttu hverfi í grónu umhverfi Árbæjar.
Íbúðin er 66,9 m² að stærð, merkt 0304 (fnr. 251-6337), og er í steinsteyptu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2023. Húsið er álklætt, viðhaldslítið og stendur á fallega frágenginni lóð með hellulögðum stéttum og sameiginlegum bílastæðum. Íbúðin er búin myndavéladyrasíma og sameignin er snyrtileg og vel við haldið. Staðsetningin er mjög góð með greiðu aðgengi að leikskólum, grunnskóla, sundlaug, verslun og þjónustu. Þá eru stuttar vegalengdir í náttúru og útivistarsvæði Elliðaárdals og Fossvogs.
Skipulag og aðstaða
Alrými samanstendur af rúmgóðri stofu og eldhúsi.
Eldhús: Harðparket á gólfi og innréttingar frá HTH. AEG stál bakaraofn, AEG spanhelluborð og innbyggð uppþvottavél. Lýsing undir efri skápum og gluggi til austurs.
Stofa: Harðparket á gólfi, gluggar til austurs og útgengi á skjólgóðar svalir með björtu útsýni til austurs og morgunsól. Rúmar bæði setustofu og borðstofu.
Svefnherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi, fataskápum og glugga til austur.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask með speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn. Tengi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign og geymslur
Sérgeymsla er í kjallara, með máluðu gólfi.
Góð aðstaða í sameign. Hjóla- og vagnageymsla er með útgengi út á lóð.
Lóð er vel hirt og frágengin með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Benedikt Smári Skúlason
Lögmaður og löggiltur fasteignasali
Sími: 823-3839
Netfang: benedikt@haborg.is
Kostnaður kaupanda við kaupin
Stimpilgjald: 0,4% fyrir fyrstu kaupendur / 0,8% fyrir aðra / 1,6% fyrir lögaðila
Þinglýsingargjald: kr. 2.700 fyrir hvert skjal
Lántökugjöld: Mismunandi eftir lánastofnunum (kr. 30.000–81.000)
Umsýsluþóknun: Samkvæmt kauptilboði

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. apr. 2023
35.900.000 kr.
53.900.000 kr.
66.9 m²
805.680 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025