Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Tjarnabraut 14

260 Reykjanesbær

64.900.000 kr.

539.933 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2289930

Fasteignamat

58.250.000 kr.

Brunabótamat

58.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
120,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Laus strax
svg
Svalir

Lýsing

Heima fasteignasala kynnir:

LAUS TIL AFHENDINGAR – Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja ENDAÍBÚÐ á 3. hæð með rúmgóðum suðursvölum. Eignin er á vinsælum stað í Innri-Njarðvík, með gólfhita og sérmerktu bílastæði beint fyrir framan hús.

Nánari upplýsingar veitir:
Aron M. Smárason, löggiltur fasteignasali
Sími: 888-7282 // netfang: aron@heimaf.is

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Eignin skiptist í:

  • Forstofu
  • Eldhús
  • Bjarta stofu með útgengi á suðursvalir
  • Þrjú svefnherbergi
  • Baðherbergi með glugga og þvottaaðstöðu
  • Sérgeymslu á jarðhæð (skráð 7,0 m²)
  • Sérmerkt bílastæði við húsið

Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri viðarinnréttingu, efri og neðri skápum, helluborði, ofni, tengi fyrir uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp.
Stofa er opin og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á suðursvalir sem snúa í skjólgóða átt.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkari með sturtuaðstöðu, innréttingu við handlaug og upphengdu salerni. Gluggi veitir náttúrulega loftræstingu.
Þvottaaðstaða er staðsett innan baðherbergis.
Sérgeymsla er á jarðhæð, skráð 7,0 m².
Gólfefni eignarinnar, fyrir utan votrými, er parket sem hægt er að pússa upp.

Viðhald og endurbætur:

  • Rafmagn hefur verið yfirfarið
  • Gluggar og opnanleg fög yfirfarin
  • Gólfhitakerfi yfirfarið
  • Öll eignin nýlega máluð
  • Þakefni endurnýjað á húsinu

Stærðir samkvæmt skráningu:

  • Íbúð á hæð: 112,6 m²
  • Sérgeymsla: 7,0 m²
  • Samtals: 119,6 m² auk sameignarrýma í kjallara

Staðsetning:

Frábær staðsetning við hlið Akurskóla og leikskólans Akur. Stutt er í verslunarkjarna og greiðar tengingar við Reykjanesbrautina.

Athugið: Seljandi hefur ekki haft búsetu í eigninni og getur því aðeins veitt upplýsingar sem byggja á opinberum gögnum.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. okt. 2023
47.650.000 kr.
274.000.000 kr.
551.5 m²
496.827 kr.
12. sep. 2022
39.150.000 kr.
350.000.000 kr.
888.7 m²
393.834 kr.
10. jún. 2022
39.150.000 kr.
333.375.000 kr.
888.7 m²
375.127 kr.
15. jan. 2021
32.200.000 kr.
510.000.000 kr.
1519.7 m²
335.593 kr.
3. okt. 2014
16.800.000 kr.
255.000.000 kr.
2187.2 m²
116.587 kr.
23. sep. 2010
19.800.000 kr.
25.200.000 kr.
10301 m²
2.446 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone