Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
84 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ*

Rúmgóðar og vel hannaðar  nýjar íbúðir, vel staðsettar í Pilar de la Horadada, skemmtilegum spænskum strandbæ um 55 mín akstur suður af Alicante. Mikil uppbygging er á svæðinu og verður ný og glæsileg verslanamiðstöð með yfir 40 verslunum opnuð 2026.
Hægt er að velja um íbúð á neðri hæð með sér garði eða á efri hæð með sér þakverönd.
Lokaður garður með sameiginlegri sundlaug
Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. 

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869. 
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354  777 4277.

Skipulag:

Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta.  Þrjú svefnherberg og tvö baðherbergi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Rafmagnstæki og lýsing fylgir.
Lagt er fyrir heitum potti og útieldhúsi á þakverönd.

Íbúðum á neðri hæð fylgir sér garður við húsið þar sem er gott pláss, t.d. til að borða úti og njóta sólarinnar.
Íbúðum á efri hæð fylgir stór sér þakverönd með frábærri sólbaðsaðstöðu, skemmtilegri grillaðstöðu og góðu útsýni.

Sameiginlegur lokaður sundlaugagarður með góðri aðstöðu. 
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. hinn vinsæli Lo Romero golfvöllur, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 15 mín. akstur vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Auk þess verður ný og glæsileg verslunarmiðstöð með yfir 40 verslunum opnuð 2026 í næst nágrenni.

Stutt göngufæri í miðbæ Pilar de la Horadada þar sem er gott úrval verslana og veitingastaða. Stutt á ströndina.

Frábært verð:
Gengi 1 Evra = 145 ISK.
Íbúð 3 svefnh. + 2 baðh.  frá 305.000 Evrur (ISK44.200.000) + 10%skattur og kostn. við kaupin.

Til afhendingar í desember 2026 - júní 2027.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, Pilar de la Horadada,
 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.