Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Hlynur Bjarnason
Dagrún Davíðsdóttir
Jason Kr. Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
einbýlishús

Tjarnarflöt 9

210 Garðabær

189.000.000 kr.

967.742 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2072485

Fasteignamat

140.450.000 kr.

Brunabótamat

94.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
195,3 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Betri Stofan og Þórhallur Biering kynna : Glæsilegt einbýli á einni hæð á frábærum stað á Flötunum í Garðabæ. Studioíbúð í hluta bílskúrs, stór nýr pallur með heitum potti. Nýtt garðhús og vinnuskúr á skjólsælli stórri lóð innst í götunni.
Stór lóð sem gefur góða möguleika á stækkun hússins ef vill.
Frábær eign á þessum eftirsótta stað í skjólsælum og rólegum lokuðum botnlanga í grónu hverfi.
 
 Eignin samanstendur af fjórum svefnherbergjum, stofum, eldhúsi, búri, þvottahúsi, sturtuherbergi, baðherbergi, gestasalerni, glerskála, bílskúr sem að hluta er innréttaður sem stúdíóíbúð og hjóla/útivista geymsla, ásamt fjölnota 15 m2 nýju garðhúsi og 6 m2 vinnuskúr. Eignin er samtals 210,3 m2 og þarf af er bílskúr 38,4 m2 og garðhús 15 m2.
 
Komið er inn í forstofu með skápa/geymsluplássi með speglahurðum, inn af forstofurými er gestasalerni. Þaðan komið í bjart miðrými hússins með góðri lofthæð þar sem eldhús er á hægri hönd. Stofur beint af augum með arni. Þaðan er gengið inn í eldhús. Í eldhúsinu eru ný tæki og búr með góðu hilluplássi. Innaf eldhúsi er þvottahúsið þaðan sem er útgengt í garð. Í þvottahúsi er gott skápapláss og gluggar og innaf þvottahúsi er sturtuherbergi.
Vinstramegin úr miðrými er svefnherbergjagangur. Á hægri hönd er bjartur glerskáli með rennihurð með útgengi á stórann nýjan suðurpall með nýjum skjólveggjum. Þar er ný góð lýsing sem og á lóðinni. Nýlegur heitur rafmagnspottur.
Svefnherbergin eru þrjú en voru áður fjögur þar sem búið samrýma tvö í eitt herbergi. Lítið mál að skipta upp aftur til að fjölga herbergjum.
Baðherbergi var endurnýjað frá grunni, gólfhiti.
Garðurinn er fallegur og vel gróinn.
Bílskúrinn er frístandandi og nýlega innréttaður sem falleg stúdíóíbúð. Hjóla/útivista geymsla er í hluta bílskúrsins með innkeyrsluhurð með rafmagnshurðaoppnara. 

Bak við bílskúrinn er fjölnota 15 m2 nýtt garðhýsi sem er einangrað og með rafmagni. Á lóðinni er einnig u.þ.b. 6 m2 vinnuskúr sem er nýttur undir garðverkfæri.

Staðsetning:  Er frábær í lokuðum botnlanga miðsvæðis á Flötunum. Stutt í alla skóla, íþróttasvæðin, verslanir og golfvelli m.a. í göngufæri.
Ný uppgert leiksvæði í enda götunnar, náttúran og lækurinn. Göngu- og hjólastígar liggja í allar áttir svo sem um náttúruperluna Heiðmörk.
Gróið og barnvænt hverfi. Næg bílastæði og mikill fuglasöngur.

Helstu endurbætur : 
Skipt var um járn á þaki fyrir um 8 árum og það yfirfarið fyrir tveimur árum, 
Nýtt baðherbergi.
Nýtt rafmagn. Þrætt og nýjir tenglar og rofar. Nýjar rafmagnstöflur.
Skipt verður um alla glugga hússins fyrir utan garðaskála nú í sumar. 
Margt annað hefur  verið endurbætt á undnaförum tveimur árum. 
 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is

 





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. des. 2024
140.450.000 kr.
164.415.000 kr.
10101 m²
16.277 kr.
2. maí. 2024
131.650.000 kr.
169.500.000 kr.
10101 m²
16.781 kr.
28. feb. 2022
95.900.000 kr.
109.000.000 kr.
195.3 m²
558.116 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone