Upplýsingar
Byggt 2025
117,4 m²
4 herb.
2 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
NÝTT Í SÖLU !!!!!! DIGRANES. Skólatröð 8, íbúð 04-08 , 200 Kópavogi er mjög vönduð 117.4 fm 4 herbergja íbúð á efstu hæð í 4ra hæða nýju glæsilegu lyftuhúsi. *AUKIN LOFTHÆÐ CA 3 METRAR OG GÓLFHITAKERFI. *TVÖ STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU FYLGJA. *STÓRAR ÞAKSVALIR 24,8 FM MEÐ GLÆSILEGU VESTURÚTSÝNI. Möguleiki er að kaupa auka stæði í bílakjallara með íbúðunum.Nánar: Íbúð merkt 04-08 er með 2 svefnherbergjum þar af er hjónasvíta með sérbaðherbergi og fataherbergi að auki er ,eldhús, stofa, baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðarinnar. Geymsla í sameign fylgir. Íbúðinni fylgja tvö stæði í bílakjallara merkt B-047 og B-169.
BÓKAÐU SKOÐUN HJÁ DAÐA Í SÍMA 824-9096, HILMARI Í SÍMA 824-9098 EÐA ÞÓRARNI Í SÍMA 899-1882.
SJÁ NÁNAR UM EIGNINA Í SKILALÝSINGU ÞAKÍBÚÐA SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT HEIMASÍÐA VERKEFNISINS
Afhending íbúðanna: Skólatröð 8 er til afhendingar í nóvember 2025.
ATH: INNIMYNDIR ERU ÚR ANNARRI ÍBÚÐ Í VERKEFNINU OG EINGÖNGU TIL GLÖGGVUNAR UM ÚTLIT INNRÉTTINGA !
Nánar um þakíbúðir við Digranes: Bjartar og vel hannaðar íbúðir sem gert er ráð fyrir að verði afhentar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, vandaðar flísar eru á baðherbergjum og þvottahúsgólfi.
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts en gengur og gerist til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í íbúðum efstu hæðar og einnig er vélræn loftskipti sem tryggja aukin loftgæði.
Svansvottun:
Mjög er vandað til allrar framkvæmdar. Allt byggingarefni og öll framkvæmd verkefnisins miðast við kröfur Svansins og stefnt er að því að fá allar íbúðir Svansvottaðar hjá Umhverfisstofnun við verklok. Sjá nánar um svansvottun hér: Svansvottun
SKIPULAGSGJALD: Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook