Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
185,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Svalir

Lýsing

Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir fjölbýlishús í 230, Reykjanesbær

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Glæsileg og vel skipulögð fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Reykjanesbæ, í göngufæri við alla helstu þjónustu, veitingastaði, skóla og íþróttamiðstöðvar.

Nánari lýsing eignar:

Neðri hæð:
Rúmgott anddyri með flísum á gólfi.

Þvottahús með góðum innréttingum og epoxy á gólfi.

Baðherbergi með sturtuklefa, vegghengdu salerni og epoxy á gólfum.

Teppalagður stigi upp á aðra hæð.

Aðalhæð:
Eldhús með nýlegum hvítum háglansinnréttingum og plastlagðri borðplötu. Harðparket á gólfum.

Tvær stórar stofur með harðparketi – önnur þeirra býður upp á möguleika á að útbúa tvö svefnherbergi (ca. 500cm x 410cm, með tveimur gluggum).

Útgengt er á góðar svalir, í suður og vestur.

Svefnherbergi með harðparketi.

Hjónaherbergi með nýlegum fataskápum og harðparketi.

Baðherbergi með flísum og baðkari.

Háaloft / Gistirými:
Gistiloft með þremur rúmum og góðu geymsluplássi.

Hefur verið leigt út í gegnum Airbnb. Gistirýmið deilir inngangi og salerni með aðalhluta hússins (salerni á neðri hæð).

Ath: Samkvæmt samþykki frá bænum má hækka þakið um 1 metra (Vantar skuggalýsingu (Grendakynning)) sem skapar spennandi möguleika til að bæta við rými eða breyta núverandi háalofti í enn notadrýgri einingu.

Þriðja hæð:
Aðgengi um steyptan stiga. Þar er geymsla og herbergi með gluggum á báðum göflum.

Máluð gólf í geymslu og stiga, plastparket í herbergi.

Aukið virði – Tvær útleiguíbúðir:
Bílskúrnum hefur verið breytt í tvær nýlegar studio íbúðir:

29 fm íbúð: Eldhús með ísskáp, eldavél og vaski. Fylgir með: þvottavél, þurrkari, sjónvarp, fataskápur og queen-sized rúm.

18 fm íbúð: Innbyggður minni ískápur og fataskápur fylgja.

Annað:
Húsið og girðing nýmálað árið 2024.

Nýir gluggar í meginhluta eignarinnar.

Nýtt rafmagn og endurnýjaðar lagnir í bílskúrnum.

Nýtt járn á þaki bílskúrs.

Geymsla við enda á bílskúr með aðgengi að köldu vatni og hilluplássi (hurðin frekar stirð og erfitt að opna).

Þrjú bílastæði fylgja eigninni.

Staðsetning og aðgengi að þjónustu:
Eignin er einstaklega vel staðsett með stuttu göngufæri í aðstöðu og þjónustu veitingastaði og kaffihús:

Skólar:
Myllubakkaskóli (grunnskóli) í u.þ.b. 600 metra fjarlægð.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja (framhaldsskóli) í um 550 metra fjarlægð.

Íþróttaaðstaða:
Íþróttamiðstöðin í Reykjanesbæ og Sundmiðstöðin eru í um 700 metra fjarlægð – þar er meðal annars sundlaug, heitir pottar, íþróttasalur og fleiri aðstaða.

Þessi eign býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir stórar fjölskyldur og/eða útleigu. Einstakt tækifæri á frábærum stað í Reykjanesbæ!

Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. jún. 2022
42.850.000 kr.
63.500.000 kr.
185.8 m²
341.765 kr.
1. nóv. 2007
16.190.000 kr.
18.500.000 kr.
156.5 m²
118.211 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík