Opið hús: Einarsnes 4, 102 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 19. ágúst 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 181 fm. og þar af er bílskúr skráður 22,9 fm.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður kr. 147.050.000
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol er bjart og með flísum á gólfi og geymsluskápum.
Hjónaherbergi með parketi og góðu fataherbergi inn af.
Barnaherbergin eru tvö og eru bæði parketlögð.
Baðherbergi endurnýjað árið 2019 með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, hiti í gólfi og flísalagt í hólf og gólf.
Fallegur stigi er úr holinu upp á efri hæðina. Undir stiganum hefur rýmið verið vel nýtt fyrir skápa og geymslupláss.
Innangengt er í bílskúrinn úr holinu. Í dag er hann útbúinn að hluta sem vinnuherbergi og hinn hlutinn hefur verið innréttaður sem þvottahús/geymsla. Útgengt er úr þvottahúsinu út á bílaplan og úr herbergi út í garðinn. Ný rafmagnstafla með þriggja fasa rafmagni var sett upp árið 2022 og lagt fyrir rafhleðslustöð. Mögulegt væri að breyta bílskúrnum í einstaklingsíbúð. Bílastæði eru fyrir framan bílskúrinn og húsið þar sem hægt er að leggja allt að fjórum bílum.
Efri hæðin: Þar er komið inn á stórt opið flísalagt rými þar sem er eldhús, borðstofa og stofa með góðri lofthæð. Útsýnið þarna er stórbrotið, mjög mikil víðsýni út á hafið og allt til Snæfellsjökuls. Einnig er búr og baðherbergi á hæðinni.
Eldhús var endurnýjað árið 2019, hvít innrétting, innbyggður ísskápur og frystir, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn og flísar á gólfi.
Borðstofa og stofa er stórt L-laga rými með flísum á gólfi og gólfhita. Útgengt er út á stórar svalir í vestur sem teygja sig svo yfir á bílskúrinn þar sem er einstaklega fallegt útsýni þar sem sjón er sögu ríkari. Lögun stofunnar býður upp á möguleikann á að bæta við litlu herbergi.
Snyrting með glugga, sturtu, salerni, vask og flísalagt í hólf og gólf.
Búr er við eldhúsið með glugga.
Stór og fallegur aflokaður garður í góðri rækt þar sem er sólar nýtur allan daginn og langt fram á kvöld. Fallegt útsýni til sjávar er frá garðinum. Gott geymslurými er í nýlegum skjólveggjum við pallinn. Skipulagi hússins hefur verið breytt og eru meðfylgjandi teikningar í samræmi við skipulag eignarinnar í dag.
Viðhaldssaga hússins:
Efri hæð hússins var klædd að utan með vönduðum álplötum árið 2003 og þá var húsið einangrað að utan að hluta.
2019
· Nýtt eldhús
· Nýtt baðherbergi á neðri hæð
· Lýsing endurnýjuð
2021
· Skipt um gler í nánast öllu húsinu og sett í hljóðeinangrunargler sem stenst hljóðkröfu upp á 39 dB
· Ný hurð sett í bílskúr að framanverðu
· Gluggar málaðir að utan
· Geymsla innréttuð undir stiga
2022
· Opnað úr íbúðarrými yfir í bílskúr og honum breytt í herbergi og þvottahús – ofnar í bílskúr endurnýjaðir og gólfhiti lagður
· Skjólveggir við pall endurnýjaðir og við hann byggðir rúmgóðir útigeymsluskápar.
· Tvö lítil barnaherbergi sameinuð í eitt.
· Ný rafmagnstafla – þriggja fasa rafmagn og hleðslustöð fyrir rafbíl sett upp
· Allir rofar og tenglar endurnýjaðir.
2023
· Múrviðgerðir á suðausturhlið
· Gólfefni í stofu endurnýjað (gegnheilar terrasso flísar,(120x120 cm) og gólfhiti lagður.
· Ofnar í stofu endurnýjaðir.
· Gólfefni í svefnherbergjum endurnýjað (vinylparket með hljóðdempandi undirlagi)
· Fataskápar í fataherbergi hjóna endurnýjaðir
· Svalagólf endurnýjað
2024
· Húsið málað að utan
· Skipt um innihurðir á neðri hæð
2025
· Nýr skjólveggur við inngang
Allar nánari uppýsingar um eignina veita Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.