Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Vista
svg

27

svg

27  Skoðendur

svg

Skráð  15. ágú. 2025

einbýlishús

Hafnargata 38

230 Reykjanesbær

125.000.000 kr.

397.709 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2219134

Fasteignamat

87.700.000 kr.

Brunabótamat

121.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1893
svg
314,3 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Hafnargötu 38 / Paddy's, 230 Keflavík

Einstakt tækifæri til að kaupa fasteignir og/eða rótgróinn barrekstur á áberandi stað í miðbæ Keflavíkur. Um er að ræða tvær fasteignir ásamt öllum tækjabúnaði og innbúi Paddy's sem hefur verið vel sóttur og vinsæll staður undanfarin ár. Í húsnæðinu eru bar- og veitingasalir á tveimur hæðum auk tveggja herbergja íbúðar með sérinngangi á efstu hæð. Íbúðinni fylgir 23,4 m² bílskúr. Eldhúsaðstaða býður upp á möguleika til að stunda veitingarekstur samhliða barnum. Lóðin er rúmgóð og gefur áhugasömum kaupendum möguleika á að kanna frekari uppbyggingu eða nýtingu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að skoða tillögur um mögulega nýtingu lóðar.


Tvær fasteignir eru skráðar samkvæmt fasteignaskrá HMS og eru samtals 314,3 m² að stærð. Kjallari og jarðhæð (samtals 217,4 m²) eru skráðar undir fastanúmeri 221-9134, en efri hæðin (73,5 m²) og bílskúr (23,4 m²) mynda aðra eign undir fastanúmeri 223-0067. Fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Nánari lýsing og skipulag eignar:
Efri hæð:
Efri hæð er skráð sem 73,5 m² íbúð ásamt 23,4 með tveimur herbergjum, baðherbergi, geymslu og rúmgóðu alrými en hefur verið nýtt sem starfsmannaaðstaða. Einnig er á hæðinni fullbúin eldhúsaðstaða með reykháfi sem gerir mögulegt að reka veitingaþjónustu á staðnum. Hæðin er með sérinngangi en einnig er hægt að komast þangað inn um stigagang frá 1. hæð. Með efri hæðinni fylgir 23,4 m² bílskúr.

Fyrsta hæð:
Á fyrstu hæð eru tveir barir, rúmgóður veitingasalur með sviði og sætaaðstöðu. Frá hæðinni er útgengt út á rúmgóðan pall bakvið húsið.

Kjallari:
Á neðri hæð hússins er annar salur sem skipt hefur verið upp í tvö rými. Annað rýmið er innréttað sem fullbúið karaoke-herbergi. Á þessari hæð eru einnig snyrtingar og góð geymsluaðstaða.

Byggingarlýsing:
Byggingin stendur á tveimur hæðum auk kjallara. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með bárujárni. Það er einangrað að innan og klætt með gipsplötum. Þakið er einnig klætt með bárujárni. Eignin var upphaflega reist árið 1893 og er friðuð bygging vegna aldurs og sögulegs gildis.

Lóð og aðkoma:
Eignin stendur á 728 m² lóð sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. möguleika á viðbótarbyggingu eða endurskipulagningu (með fyrirvara um samþykki skipulagsyfirvalda). Bílastæði eru fyrir framan eignina, og rúmgóður pallur með setuaðstöðu er staðsettur að bakvið húsið.

Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. feb. 2015
20.500.000 kr.
16.000.000 kr.
314.3 m²
50.907 kr.
7. feb. 2008
16.560.000 kr.
35.800.000 kr.
314.3 m²
113.904 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær