Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2014
svg
181,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg kynnir í einkasölu glæsilega "penthouseíbúð'' við Holtsveg 25 í Urriðaholti í Garðabæ. Um er að ræða 181,8 fermetra 5 herbergja íbúð á efstu hæð með gluggum í allar áttir og er þetta eina íbúðin á hæðinni. Eignin samanstendur m.a. af glæsilegu alrými með stofu og eldhúsi, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottaherbergi, rúmgóðri forstofu og tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara. Rut Káradóttir innanhúsarkítekt hannaði lýsingu íbúðarinnar.

Lýsing eignar:
Lyfta opnast beint inn í íbúðina. Tvennar svalir, aðrar um 30 fermetrar að stærð með viðarklæddu gólfi, heitum potti og glerhandriði á stálprófílum og hinar um 40 fermetrar að stærð einnig með viðarklæddu gólfi og glerhandiriði á stálprófílum. Tvö sér bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgja eigninni og sérgeymsla á jarðhæð er 12,8 fermetrar að stærð. Innréttingar eru frá HTH, gólfefni eru öll frá Birgisson og eldhús- og baðtæki eru vandaðrar gerðar, innihurðir frá Birgisson eru í yfirhæð og lofthæð íbúðarinnar er yfir 3,0 metrar. Gólfsíðir gluggar eru á stórum hluta íbúðarinnar, tvennar stórar svalir, þar af aðrar með heitum potti og útsýni frá eigninni er algjörlega einstakt.


Forstofa: mjög rúmgóð, björt og flísalögð með miklum gluggum, frábæru útsýni og útgengi á um 30 fermetra þaksvalir með heitum potti og glerhandriði á stálfprófílum. Frá svölum nýtur einstaks útsýnis til norðurs, vesturs og suðurs.
Hol: flísalagt.
Þvottaherbergi: flísalagt og með góðum innréttingum.
Stofa: parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum, einstöku útsýni yfir Urriðakotsvatn, að Reykjanesi, Snæfellsjökli og víðar. Úr stofu er útgengi á um 40,0 fermetra svalir til suðurs, vesturs og norðurs sem eru með þaki yfir að hluta, glerhandriði á stálprófílum og frábæru útsýni.
Eldhús: opið við stofu, parketlagt og með gluggum. Hvítar sprautulakkaðar HTH innréttingar með graníti á borðum, miklu skápaplássi, tveimur AEG ofnum, innbyggðri uppþvottavél og tvöföldum ísskáp með klakavél. Eyja með graníti á borði, spanhelluborði. Borðaðstaða er við eyju.
Gangur: parketlagður.
Baðherbergi I: stórt og með tveimur gluggum, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I: parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II: parketlagt með gluggum í tvær áttir og fataskápar.
Hjónasvíta samanstendur af:
Hjónaherbergi: stóru, parketlögðu með útgengi á stórar svalir til suðurs, vesturs og norðurs og með gluggum í tvær áttir.
Fataherbergi: parketlagt, gluggi og miklar innréttingar.
Baðherbergi II: með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri.

Á jarðhæð hússins eru:
Tvö sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Rafhleðslustöð uppsett í öðru stæðinu og búið að leggja að hinu.
Sérgeymsla: 12,8 fermetrar að stærð, fremst á geymslugangi og með miklum hillum.
Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæðinni.


Staðsetningin er góð þar sem stutt er í Urriðaholtsskóla, sem er leik- og grunnskóli og leikskólann Urriðaból við göngufæri, ásamt verslun og veitingastaði. Að auki er stutt í útivistarperlur, golfvelli og frábærar göngu og hlaupaleiðir.


Bókið einkaskoðun hjá:

Kristín Avon Gunnarsdóttir aðst. f.sala í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is

Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasasali 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. sep. 2024
128.250.000 kr.
165.000.000 kr.
10501 m²
15.713 kr.
1. nóv. 2020
90.700.000 kr.
3.500.000 kr.
257 m²
13.619 kr.
21. sep. 2016
26.700.000 kr.
69.900.000 kr.
181.8 m²
384.488 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík