Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1965
198,4 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Mikið uppgerð, rúmgóð og björt 5 - 6 herbergja hæð á 2. hæð (efstu) í þríbýli með bílskúr við Þórunnarstræti 129 á Akureyri - samtals 198,4 m² stærð.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti. Íbúðin sjálf skiptist í forstofu, stigauppgöngu, stofu, hol, eldhús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, þvottahús og geymslu sem nýtist sem herbergi/skrifstofa. Á jarðhæðinni er bílskúr, sér geymsla auk sameignarrýmis.
Íbúðin hefur verið mikið tekin í gegn á undanförnum árum s.s. allar innréttingar og gólfefni.
Forstofan er með flísum á gólfi og þaðan er farið upp rúmgóða stigauppgöngu með tveimur stórum glugga til austurs. Stiginn upp er járnstigi með timburþrepum.
Stofa og hol eru í mjög rúmgóðu rými og þar er harðparket á gólfi. Stórir gluggar eru til suðurs og útgangur á rúmgóðar svalir til vesturs.
Eldhús er með nýlegri ljósri innréttingu og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergin á hæðinni eru fjögur á þeim öllum er harðparket og ljósir fataskápar.
Baðherbergið er nýlaga uppgert, flísalagt í hólf og gólf, ný ljós innrétting og sturta með gleri. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús er flísalagt og þar er nýleg ljós innrétting með efri og neðri skápum, vaska og útgangi á rúmgóðar svalir til norðurs.
Geymsla er innaf þvottahúsi og þar er parket á gólfi og gluggi til austurs og skápur. Rýmið nýtist sem skrifstofa í dag og auðvelt að nota sem fimmta svefnherbergið.
Bílskúrinn er flísalagður og þar er heitt og kalt vatn, ljós innrétting og slöngukefli sem fylgir með við sölu. Innan við bílskúr er sameign og þar er farið inn í sérgeymslu, sameiginlega forstofu og salerni í sameign.
Lóðin er stór og gróin. Bílastæði er framan við bílskúr og þar fylgja tvö stæði íbúðinni.
Annað
- Árið 2022 var settur gólfhiti í alla íbúðina og eldhús sem og þvottahús endurnýjað. Auk þess var skipt um innihurðar og skápa.
- Árið 2025 var baðherbergið endurnýjað og nýtt parket lagt á alla íbúðina.
- Vel staðsett eign - göngufæri við miðbæinn, Glerártorg og sundlaugina.
- Gott útsýni er úr íbúðinni.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. mar. 2022
43.650.000 kr.
80.900.000 kr.
198.4 m²
407.762 kr.
17. ágú. 2020
46.450.000 kr.
40.000.000 kr.
198.4 m²
201.613 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025