Lýsing
Falleg og björt 4ra herbergja ENDAÍBÚÐ á 2. hæð með stórum svölum í fjölbýli á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ á Holtinu. Eignin hefur mikið verið endurnýjuð á síðustu árum. Eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum. Baðherbergi nýlega standsett. Gólfefni og hurðar nýlega endurnýjað. Sameign snyrtileg.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 99,9 fm. og 8,5 fm. sérgeymsla á jarðhæð, samtals 108,4 fm. skv. Þjóðskrá Íslands.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi. Fatahengi.
Miðrými: Parket á gólfi.
Stofa / Borðstofa: Rúmgóð og björt með parket og flísar á gólfi. Útgengt á flísalagðar vestursvalir með fallegu útsýni.
Eldhús: Glæsileg og nýleg hvít innrétting, tæki nýleg. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir. Flísar á gólfi
Baðherbergi: Nýlega standsett. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta aðskilin með gleri. Falleg innrétting í kringum handlaug.
Svefnherbergi: 3 rúmgóð herbergi, parket á gólfum og fataskápar í öllum herbergjum, nýlegur fataskápur í hjónaherbergi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla á jarðhæð með glugga.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat