Lýsing
Nýlega er búið að skipta um gólfefni á íbúðinni, teppi í stiga og nýtt harðparket í stofu, eldhúsi, gangi og svefnherbergjum. Flísar í blautrýmum.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með skáp. Nýlegt harðgert teppi á gólfi. Stór gluggi í anddyri sem gefur góða birtu.
Stofa, borðstofa og hol: Stórir gluggar sem gefa góða birtu. Nýlegt harðparket á gólfi. Góð lofthæð. Útgengt út á rúmgóðar og skjólgógðar suðvestur svalir sem liggja í L.
Eldhús: Rúmgott með nýlegu harðparketi á gólfi. Eldri snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi. Flísar milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur.
Þvottahús er inn af eldhúsinu og er flísalagt.
Geymsla/Búr er inn af eldhúskróknum í eldhúsinu.
Hjónaherbergi: Nýlegt harðparket á gólfi og fataskápur, en vantar hurð á fataskápinn.
Barnaherbergin eru tvö með nýlegu harðparketi á gólfi ásamt skápum.
Baðherbergi: Nýlega gert upp, flísalagt í hólf og gólf, "walk-in" sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Bílskúr: Steypt gólf, búið er að einangra loftið en það á eftir að klæða það og einnig að fara yfir rafmagn.
Hellulögð innkeyrsla þar sem hægt er að leggja fyrir framan skúrana, svo er eitt sameiginlegt stæði fyrir framan húsið.
Fyrir nánari upplýsingar, hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., sími 775 5805 / email: runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.