Sölusýning MUNDAKOT 2 , 820 Eyrarbakki. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 10. september 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. ATH SKRÁNING Á SÖLUSÝNINGU FER FRAM Í SÍMA 483-5800 EÐA byr@byrfasteignasala.is
Lýsing
Íbúðarhús, byggt árið 1900, kjallari, hæð og ris 83.0 m², aukahús skráð geymsla byggt árið 1935, 94.4 m², samtals 177.4 m² samkvæmt skráningu HMS.
SKIPULAG AÐALHÚS (Blátt); Hæð: Anddyri, eldhús og stofa, baðherbergi. Ris: Tvö herbergi. Kjallari: Þvottur og geymsla
SKIPULAG AUKAHÚS (Svart); „Íbúð": Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi og baðherbergi. Bílskúr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |
AÐALHÚS, nánari lýsing;
Hæð: Komið er inn í flísalagt anddyri, þaðan liggur trappa upp að eldhúsi og stofu, þaðan liggur einnig stigi upp í ris.Innangengt er frá anddyri á baðherbergi.
Eldhús, gólfborð, innrétting með eldavél, borðkrókur, frá eldhúsi er innangengt í stofu annarsvegar og hinsvegar niður timburstiga í kjallara.
Stofa, gólfborð, kamína er í stofu tengd í skorstein (kamína fylgir ekki með og verður fjarlægð fyrir afhendingu).
Baðherbergi, gólfborð, baðkar, vaskinnrétting og upphengt salerni, gluggar.
Ris: Tvö herbergi eru í risi, gólfborð, opin fataskápur er í öðru þeirra.
Kjallari: Þvottaaðstaða er í kjallara og geymsla, opið er á milli rýma, gluggar, steypt gólf.
Timburhús, kjallari, hæð og ris, húsið er klætt að utan með bárujárni, bárujárn á þaki, timburgluggar og hurðar. Steypt stétt og steyptar tröppur eru framan við húsið.
AUKAHÚS, nánari lýsing;
„Íbúð": Anddyri/bíslag, flotað gólf, fatahengi er innaf. Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, upptekið loft, harðparket á gólfi.
Eldhús, innrétting, Gorenje eldavél, gert ráð fyrir ísskáp við innréttingu, gluggar.
Tvö herbergi, hjónaherbergi með fjórföldum opnum fataskáp, minna herbergið er án skápa. Lúga er upp á loft úr minna herbergi.
Baðherbergi, flísar á gólfi, baðkar, Burlington salerni og vaskinnrétting, gluggi, þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Bílskúr, bílskúrshurð og gönguhurð, búið er að einangra með ull að mestu og plasta. Gólf er steypt.
Timburhús á einni hæð, klætt að utan að mestu leyti með timburklæðningu, járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Hellulögð stétt er framan við húsið innan við skjólgirðingu.
Ljósleiðari er í báðum húsum.
Lóðin er að mestu grasi gróin, krúttkofi er á lóðinni ásamt skúr u.þ.b. 6 m² á hlöðnum sökkli, hefur verið nýtt sem eldsmiðja.
Malarinnkeyrsla og stæði eru fyrir framan húsin, pláss fyrir fjórar bifreiðar.
Gamall steyptur brunnur er á lóð framan við húsið, u.þ.b. 4 metra djúpur, vatn (léttsaltað) safnast saman í brunni vatnshæð u.þ.b. 1,2 metrar.
Lóðin er eignarlóð, lóðin er sameiginleg skemmu sem stendur á lóðinni í eigu sama aðila.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 220-0402. Mundakot 2.
Stærð: Íbúð 83.0m². Geymsla 94.4 m² Samtals 177.4 m².
Brunabótamat: 40.900.000 kr.
Fasteignamat: 36.850.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 42.750.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1900. Geymsla 1935
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
01.2- Séreign. 01.0001 Geymsla 29.2 Brúttó m². 01.0101 Íbúð á hæð 41.4 Brúttó m². 01.0201 Íbúðarherbergi í risi 12.4 Brúttó m².
05.2 - Séreign. 05.0101 Sérhæfð bygging 94.4 Brúttó m².
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala