Lýsing
Einstaklega fallegt og talsvert endurnýjað og vel við haldið raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á þessum vinsæla stað í Grafarvogi. 3 rúmgóð svefnherbergi og auðvelt að bæta 4 við. Fallegur garður með stórri suðurverönd með gróðurhúsi. Mikil lofthæð og frábært skipulag. Stórt hellulagt bílaplan fyrir framan eign. Innréttingar frá Axis. Stutt í alla helstu þjónustu og skóla. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, miðrými, sjónvarpshol, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.
Einnig er frístandandi 14,9 fermetra sólstofa/gróðurhús í garðinum og er ekki inn í fermetra tölunni.
Skv. þjóðskrá er eignin skráð: íbúðarhluti 166,4 fm. og bílskúr 27,3 samtals: 193,7 fm.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast.
Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofa með náttúruflísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp frá Axis.
Miðrými: Rúmgott með vínylparket á gólfi
Björt stofa / borðatofa, hátt til lofts, nýlegt vínylparket á gólfi (Ca 3 ár síðan það var lagt) steyptur stigi upp efri hæð og gangur/sjónvarpshol er lagt með sama vínylparketi.
Gólfhiti er að hluta af stofu. Útgengt úr stofu í góðan garð sem snýr suður. Frístandandi gróðurhús ca 14,9 fm sett upp júlí 2023
Lítill garðverkfæraskúr/skápur frá Costco.
Pallur við hús er eldri, en hinir tveir og veggir á milli garða eru byggðir 2017. Gróðurhús og flott grillaðstaða.
Eldhúsið með náttúruflísum á gólfi, eldavél og bakaraofn í vinnuhæð (bæði tækin keypt fyrir 7-9 árum) Innbyggður ísskápur ca 7 ára gamall. Hiti í gólfi í eldhúsi. Mjög rúmgóður borðkrókur.
Góð eikarinnrétting frá Axis en efri skápar eru sprautulakkaðir.
Gestaklósett á neðri hæð er með náttúruflísum. Nýleg innrétting - efri skápur frá Ikea og vaskaskápur með vaski frá Bauhaus (ca 2-3 ára) Upphengt salerni.
Rúmgott þvottahús með náttúruflísum á gólfi - innrétting og vaskaborð, gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara, ágætt geymslupláss.
Gengið er inn í bílskúr með lökkuðu gólfi, rafmagnshurðaopnari, ágætis geymslupláss í bílskúr (hillur)
Hiti er í plani fyrir framan bílskúr og stæði fyrir 2 bíla.
Á efri hæð er baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti á baði. Baðkar, sturta, upphengt salerni, baðinnrétting frá Axis.
Rúmgott hjónaherbergi með linoleum dúk á gólfi, í hjónaherberginu er lítið fataherbergi, fyrir ofan fataherbergið er ágætis geymsla (hillur)
Útgengt á litlar svalir í norður.
Tvö barnaherbergi með linoleum dúk á gólfum og eikarskápum frá Axis
Á efri hæð er sjónvarpshol með vínylparket
Skipt var um þak 2004 og settir nýir þakgluggar.
Búið að skipta um hluta af gleri fyrir 3 árum, fyrri eigendur einnig skipt um hluta af rúðum. Nokkrar rúður með móðu á milli.
Öll lengjan var máluð að utan 2016.
Virkilega góð eign á frábærum stað.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat