Lýsing
Smáratún 37, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Smáratún 37 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-0423, birt stærð 158.6 fm. Skiptist í: Íbúð 130,6 fm. Bílskúr 28 fm.
*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali, Löggiltur leigumiðlari, í síma 661 7788, tölvupóstur bo@stofnfasteignasala.is.
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
Helstu endurbætur:
- Gluggar endurnýjaðir að hluta
- Þak og gluggar á bílskúr endurnýjaðir
- Skolp endurnýjað
- Ofnar endurnýjaðir að hluta
- Allar innihurðir, svalahurð og útidyrahurð endurnýjaðar (2009)
- Eldhús endurnýjað með innbyggðum tækjum (uppþvottavél, bakaraofn, örbylgjuofn og tveir ísskápar)
- Parket og flísar á gólfum endurnýjuð (flísar frá Álfaborg)
- Innkeyrsla hellulögð með hitalögn
- Skipt um alla ramma á tenglum og rofum (efni frá Ískraft)
Eignin skiptist í:
Forstofu, herbergisálmu, stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, salerni, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og bílskúr.
Skipulag rýma
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur
Gangur: Breiður gangur með parket á gólfi, gangurinn tengir saman stofu og útgengi á fallega verönd og út á baklóð.
Stofa/ borðstofa: Mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi, vönduð LED lýsing frá Pfaff.
Eldhús: Fallegt nýleg eldhús innrétting með innbyggðum og nýlegum tækjum, stór eyja sem hægt er sitja við, mjög gott geymslu og vinnupláss.
Gestasalerni: Innaf eldhúsi er glæsilegt salerni með viðarþiljum og flísum, innfelldri LED lýsingu, upphengtu salerni og fallegri innréttingu (rýmið var upprunalega þvottahús sjá teikn.).
Þvottahús: Er innan salernis með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, einstaklega glæsilegt, góðar innréttingar og upphengt salerni.
Herbergjagangur: Með parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjóna herbergi með miklu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi/ sjónvarpsherb: Ágætis herbergi með parket á gólfi, notað í dag sem sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi: Ágætis innrétting með handlaug, skáp, baðkar með sturtu aðstöðu og salerni. Innan baðherbergis er einnig sturta og gott skápapláss, flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi (3): Öll með parketi á gólfum, fataskápur í einu þeirra
Bílskúr: 28 fm. með heitu og köldu vatni, hita, rafmagni og bílskúrshurðaopnara, endurnýjað þak og gluggar.
Garður og lóð: Stór og skjólgóður garður með gróðri, trjám og grasflöt. Rúmgóður sólpallur með setusvæði og heitum potti. Beint fyrir aftan lóðina er hverfisgarður með göngustígum og leiktækjum sem nýtist vel fyrir fjölskyldur og börn.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali, leigumiðlari, í síma 661 7788, tölvupóstur bo@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið.
Við vinnum af heilindum, dugnaði og metnaði til árangurs og er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.