Opið hús að Þorfinnsgötu 12 íbúð 101, 101 Reykjavík fimmtudaginn 11. september 2025 á milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Björt og falleg, mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð á eftirsóttum stað við Þorfinnsgötu 12 í Reykjavík. Öll helsta þjónusta, verslanir, skóli og sundlaug í göngufæri.
Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi. Þá fylgja íbúðinni jafnframt tvær geymslur í kjallara (um 7,2 fm) sem eru ekki inn í skráðum fermetrum íbúðar ásamt sameiginlegu þvottahúsi og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi en búið er að opna niður í herbergi í kjallara sem fylgir eigninni. Herbergið nýtist því sem þriðja herbergið. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 87,50 fermetrar.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fataskáp, parket á gólfi.
Stofa og eldhús er í opnu alrými, bjart og fallegt rými með rennihurð á milli og parket á gólfi, úr stofu er gengið niður í 3ja svefnherbergið.
Eldhús er með hvíta innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, nettur vínkælir í innréttingu og gott vinnupláss. Bakaraofn í vinnuhæð og span helluborð, parket á gólfi.
Samkvæmt fyrri eiganda var eldhúsið fært og endurnýjað árið 2023, það er því búið að endurnýja allar lagnir og öll tæki í eldhúsi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er mjög rúmgott herbergi í kjallara sem gengið er niður í úr stofu. Herbergið er í kjallara og er skráð geymsla á teikningum en búið er að opna frá íbúð niður í herbergi og nýtist það sem rúmgott svefnherbergi í dag.
Baðherbergi var endurnýjað að fyrri eiganda, flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, falleg handlaug úr steini, upphengt salerni, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Geymslur: uþb. 7,2 fermetra geymsla fylgir eigninni í kjallara.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara ásamt sameiginlegri vagna-og hjólageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat