Opið hús: Stakkholt 2B, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 102. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 10. september 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða fallega 3ja herbergja 101 fm íbúð með suður svölum á 1. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Stakkholt 2b í Reykjavík. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu, mjög stórar svalir, þvottahús innan íbúðar og geymsla í sameign sem er 7,2 fm.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóðan forstofugang með tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Alrýmið er opið og bjart með stórum gluggum og útgengi út á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhúsið er opið með dökkri viðar innréttingu og hvítum efri skápum með góðu skápaplássi, fallegum háfi, bakarofni og helluborði frá Electrolux, og innbyggðri uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með fataskápum. Hjónaherbergið er með fataskáp á heilum vegg.
Baðherbergið er með rúmgóðri sturtu með sturtugleri, handklæðaofni, hvítri innréttingu, speglaskáp, og upphengdu salerni,
Þvottahúsið er með innréttingu fyrir bæði þvottavél og þurrkara, og upphengdum snúrum.
Gólfefni eru 8 mm eikarharðparket og flísar eru frá Álfaborg. Innréttingar eru frá Trésmiðju GKS ehf. Eldhústæki eru frá Ormsson og hreinlætistæki eru vönduð og voru innflutt af ÞG-Verk, sem byggði húsið. Innihurðir eru sprautulakkaðar hvítar og hurðir í sameign eru með sérstakri hljóðdempun. Í húsinu eru dyrasímar með myndavél og vandað lyklakerfi. Gluggar og svalahurðir eru ál/tré og eru gluggar glerjaðir með K- gleri sem er sérstaklega hljóðeinangrað gler.
Hurð fyrir bílageymslu er flekahurð úr lituðu stáli. Klæðning á húsinu að utanverðu er viðhaldslétt álklæðning með innbrenndum lit og lerki sem er tvílituð með olíu kjörvara.
Snjóbræðslukerfi er við húsið.
Aðkeyrsla að bílageymslu er beint frá Stakkholti og anddyri hússins er bakvið hús en gengið er að húsinu annaðhvort frá Mjölnisholti eða Stakkholti.
Fallegur snyrtilegur garður með garðbekkjum og leiksvæði er bakvið hús.
Einungis 2 íbúðir eru á hæðinni.
Íbúðin er frábærlega vel staðsett, í göngufæri við verslanir, veitingastaði, og allt það sem miðbærinn býður upp á.
Fasteignamat næsta árs er kr. 90.250.000.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.