Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Ingimar Óskar Másson
Kári Sighvatsson
Vista
einbýlishús

Brekkuland 4a

270 Mosfellsbær

Tilboð

Fasteignanúmer

F2083168

Fasteignamat

178.350.000 kr.

Brunabótamat

196.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
339,6 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:


Eignamiðlun kynnir:  Glæsilegt 339,6 m2 einbýlishús á pöllum með bílskúr og stúdíóíbúð við Brekkuland 4A í Mosfellsbæ. Eignin er 255,2 m2 listilega hannað einbýlishús á þremur pöllum ásamt stórum 42,2 fermetra bílskúr og 42,2 m2 stúdíó íbúð fyrir ofan bílskúr sem veitir möguleika á góðum leigutekjum.
Staðsetningin er afar góð á stórri eignarlóð, rétt ofan við Álafosskvosina, með útsýni yfir Álafoss og með Varmárdalinn og Helgafell ásamt Lágafelli og Úlfarsfelli í suðvestur. Þarna eru fallegar gönguleiðir og önnur útivist í göngufæri.
Húsið er hannað og teiknað af Halldóri Gíslasyni arkitekt og hefur meðal innlendra og erlendra umfjallana prýtt forsíðu arkitektablaðsins. Við hönnun hússins lagði arkitektinn áherslu á að hið fagra útsýni og nánasta umhverfi nyti sín sem best, þ.e. yfir Álafosskvosina og Álafossinn. Kistufell í Esju er í raun frummynd í hönnun hússins. Húsið er steinsteypt úr sjónsteypu og var tekið tillit til sólargangs við hönnun og staðsetningu hússins á lóð. Þakbrún er úr ryðfríu aluzinki.


Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Anddyri: Er vel opið með nýrri og einstaklega stórri álhurð í glæsilegri umgjörð (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu í flestum gólfum eignarinnar) og sérsmíðuð millihurð á sveifluöxli frá anddyri í hol.
Baðherbergi: Með upphengt salerni og Duravit innréttingu og náttúrulegum steinvaski, veggir með steinefnasparsli.
Eldhús: Stórt með sérsmíðaða, glerklædda eldhúsinnréttingu frá Häcker með Gaggenau tækjum (bakara- og grillofn, gufuofn, hitaplata og tvöfaldur vínkælir), gott pláss fyrir borðstofuborð í stækkaðri borðstofu með glæsilegu útsýni. Í eldhúsinu er einstaklega stór eldunareyja úr hitaþolnu Dekton steinefni með borðaðstöðu og Bora spanhelluborði með gufugleypi. Horngluggi til vesturs og gluggar til norðurs, innfelld lýsing og kastarar í lofti. Veggir eru með steinefnasparsli.
Borðstofan: Var stækkuð nýlega út frá eldhúsi, með stórri rennihurð á móti kvöldsólinni, á terrassoslípaðan pall, undir borðstofunni er “tæknirými” þar sem hentugt upphitað geymslupláss er.
Þvottahús: Í nokkuð stóru þvottahúsi eru allar tengingar vegna gólf og húshita og gert ráð fyrir innréttingu með vaski. Lagnir eru fyrir þvottavél og þurrkara sem eru í núverandi innréttingu.
Stofa: Gengið er niður í stofu um nokkrar terrassoslípaðar steintröppur. Stofan er stór með mikilli lofthæð (5-7 metra), terrassoslípað steypt gólf með fallegum stállistum, miklir gluggar ná upp í loft til vesturs og útengi þaðan út á terrassoslípaða verönd. Gamall enskur arinn úr marmara er í stofu og er gólf tekið niður þar um 30 cm, sérgerðar sessur eru umhverfis arinn, innfelld lýsing í loftum (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu).

Gengið beint upp tröppur og stiga frá holi, á millipalli er aðgengi í endarými þar sem gengið er um svalir tengdar stofu hússins. Á millipalli er unnið að stækkun og breytingu varðandi glugga til austurs við stiga. Á efri hæð er mikil lofthæð með innfelldum ljósum, í gólfi er hiti, gólfin eru flotuð og glæruð.

Efri hæð:
Svefnherbergi: Í svefnherbergi er staðsteypt rúm með sérhönnuðum höfðagafli. Í hönnun er tekið tillit staðsetningar og sólargangs. Þar er einnig útgengi út á stórar suðvestursvalir með glæsilegu útsýni yfir Varmá, Álafosskvosina og í vesturátt að sólarlagi. Nýlegir gluggar og svalahurð og svalir með pallaklæðningu.
Baðherbergi: Steinefnasparsl á veggjum, mjög stór og góð sturta, mikil lofthæð með innfelldri lýsingu og góð ofanbirta um þakglugga, upphengt salerni og lagnir fyrir frístandandi baðkar. Upphengd innrétting með náttúrulegum steinvaski.

Stúdíóíbúð: 
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og endurnýjuð á glæsilegan hátt með fjölþættum og dimmanlegum ljósum. Komið er inn í anddyri/gang með sérsmíðuðum skáp sem inniheldur fatahengi og búr/tækjaskáp er snýr að ganginum og skilur að svefnrými þar sem í skápnum er fatageymsla og skúffur. Í baðherbergi er sturta, upphengt salerni, skáparými sem meðal annars innheldur þvottavél og þurrkara, hurð á baði er sérsmíðuð og sturtuklefi sérhannaður og stór náttúrulegur steinvaskur. Í alrými er eldhúsinnrétting frá Häcker með Liebherr ísskáp og frysti með klakavél, tvöfaldur Samsung bakaraofn, Samsung grill og örbylgjuofn, uppvottavél og tvöfaldur vínkælir. Í eldunareyju er Bora spanhelluborð með gufugleypi og mataraðstöðu. Í svefnrými er tvíbreytt rúm, útsýni er til norðurs og vesturs á móti kvöldsólinni, en utan við norðurhlið er gert ráð fyrir heitum potti og slökunaraðstöðu til að njóta himins og norðurljósa.
Bílskúrinn: Er rúmgóður, skráður 42,2 m2, með rafmagnihita og rennandi vatni. Ný bílskúrshurð.
Stór eignarlóð, 1.706,7 fermetrar, búið er að teikna drög að breytingum að lóð og eru ákveðnar framkvæmdir hafnar. Búið er að drena meðfram húsi og bílskúr steypa og terassoslípa plön og tröppur í lóðinni. Einnig er búið að gera gosbrunn með stuðlabergi sem er einstakur á sinn hátt, búið er að leggja lagnir fyrir vatn og rafmagn í garðinn.

Allar upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali - kjartan@eignamidlun.is, s:824-9093 eða Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali - rognvaldur@eignamidlun.is, s:660-3452

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kjartan Hallgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. apr. 2017
77.950.000 kr.
77.000.000 kr.
339.6 m²
226.737 kr.
9. jan. 2007
46.295.000 kr.
60.122.000 kr.
339.6 m²
177.038 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík