Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
101,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Nýtt í sölu! Urriðaholtsstræti 14 Garðabæ - Bókið skoðun.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja 101,6 fermetra útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Urriðaholtsstræti 14 í Garðabæ. Íbúðin er með rúmgóðum svölum til suðurs og sérbílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Sérgeymsla sem er 14,4 fermetrar að stærð með gluggum. Vandað hús og fallegt hús með innréttingum frá HTH.
Húsið er afar fallegt byggt árið 2020, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar fyrir framan hús. Sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Urriðaholti Garðabæ. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni um Heiðmörk, Urriðavatn og víðar.
Lýsing eignar:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá HTH. AEG Stál bakaraofn, AEG spanhelluborð og falleg eyju vifta. Stæði fyrir kæliskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Lýsing undir efri skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs og útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar, með glerhandriði og snúa til suðurs.
Borðstofa: Með harðparketi á gólfi og er staðsett við eldhús. Gluggar með fallegu útsýni til norðurs m.a. út á sundin, Esjunni og Snæfellsjökli.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til suðurs.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Bílastæði: Er vel staðsett í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Afar snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir bílhleðslustöðvar.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins.
Sér geymsla: Er staðsett í sameign sem er 14,4 fermetrar að stærð með máluðu gólfi og gluggum.
Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt álklætt hús.
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar.
Allar nánari upplýsingar:
veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. júl. 2024
76.700.000 kr.
78.500.000 kr.
10303 m²
7.619 kr.
28. ágú. 2020
47.500.000 kr.
54.630.000 kr.
101.6 m²
537.697 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025