Lýsing
Heimili fasteignasala og Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali kynna í einkasölu Skúlagötu 3. Glæsileg og björt 3ja herbergja endaíbúð á efri hæð í 5 íbúða einingahúsi byggt 2008. Glæsilegt útsýni.
*** Bókið skoðun hér ***
Nánari lýsing:
Forstofa: Gott skápapláss. Flísar á gólfi. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Stofa: Björt og falleg með gólfsíðum gluggum. Útgengi út á stórar suðvestur svalir. Glæsilegt útsýni til sjávar.
Eldhús: Falleg og snyrtileg hvít innrétting. Háfur, spanhelluborð, stæði fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott. Gluggar á tvo vegu. Gott skápapláss. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Bjart og rúmgott. Fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Nett innrétting undir handlaug, speglaskápur fyrir ofan. Upphengt salerni, sturtuklefi. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, gott vinnuborð. Gluggi í þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Geymsla: innan íbúðar er gluggalaus rúmgóð geymsla. Flísar á gólfi.
Sameign: Sameiginleg hjóla-og áhaldageymsla er staðsett á lóð.
Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign í hjarta bæjarins, frábært útsýni. Grunnskóli og íþróttasvæði í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.