Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Kristjánshagi 13

600 Akureyri

119.900.000 kr.

761.270 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2510743

Fasteignamat

95.250.000 kr.

Brunabótamat

87.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
157,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
Opið hús: 23. september 2025 kl. 17:15 til 18:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Kristjánshagi 13 - Glæsileg 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð, suður endi með bílskúr í Hagahverfi - stærð 157,5 m²
Húsið er steypt og klætt að utan.


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 

Forstofa er með harð parketi á gólfi og opnu hengi. 
Eldhús, vönduð svört plast lögð innrétting (Nero oak) og eyja með grárri bekkplötu. Vandað helluborð með viftu ofaní. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harð parket er á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Stórir gólfsíðir gluggar til tveggja átta og tvær gönguhurðar út á verönd. Aukin lofthæð. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harð parketi á gólfi og fataskápum. Innfelld lýsing er í loftum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,6 - 10,2 og 14,8 m². Eitt af herbergjunum er skráð sem geymsla á teikningum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vönduð svört plastlögð innrétting og speglaskápur, upphengt wc, handklæðaofn, rúmgóð walk-in sturta með innfelldum tækjum, opnanlegur gluggi og hurð út á verönd. 
Þvottahús er með flísum á gólfi og plastlagðri svarti innréttingu með skolvaska og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Fellistigi er upp á geymsluloft sem er yfir þvottahúsinu. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr. 
Bílskúr er skráður skv. teikningum 26,3 m² að stærð. Þar er lakkað gólf, rafdrifin innkeyrsluhurð og gönguhurð. Loft er tekið upp og innst í bílskúrnum er geymsluhilla sem nær um 1,5 meter fram.

Annað
- Steypt verönd með steyptum skjólveggjum er með allri austurhlið hússins og hluta af suðurhliðinni. 
- Steypt verönd er fyrir framan. Steypt stétt á suðurhliðinni tengir verandir saman.  
- Heitur og kaldur pottur eru veröndinni að austan.
- Snjóbræðslukerfi er í öllum steyptum stéttum og bílaplani, lokað kerfi. 
- Loftskiptikerfi er í húsinu. 
- Aukin lofthæð er í húsinu og innfelld lýsing í helstu rýmum. 
- Innréttingar og skápar er plastlagðar, Nero oak og eru frá www.gks.is 
- Innihurðar eru yfirfelldar hvítar.
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2021
54.050.000 kr.
50.350.000 kr.
157.5 m²
319.683 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone