Lýsing
***Grundargerði 15, 108 Reykjavík – fjölskylduvæn eign í rólegu og rótgrónu hverfi***
Trausti fasteignasala og Halldór Frímannsson lgf. kynna til sölu rúmgóða eign á frábærum stað í Grundargerði 15, 108 Reykjavík ásamt öllu því
sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin stendur í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun og þjónustu. Göngustígar og brýr tengja hverfið við Skeifuna og Kringluna. Strætisvagnastoppistöð er í göngufæri.
Grundargerði 15 er skráð samkvæmt fasteignayfirliti: Eign 203-4499, birt stærð 181.9 fm.
Íbúð: 141,9 fm (hæð + kjallari + köld geymsla)
Stúdíóíbúð (skráð sem bílskúr): 40 fm
Eignin er endurnýjuð, björt og falleg á tveimur hæðum auk stúdíóíbúðar.
Íbúðin hentar einstaklega vel stórum fjölskyldum. Hún er með sérinngangi á báðum hæðum, skjólgóðum og gróðursælum garði beggja vegna hússins og
glæsilegum nýjum sólpalli í bakgarði. Stór innkeyrsla býður upp á nóg af bílastæðum – m.a. með Tesla hleðslustöð.
Nánar um eign:
Hæð:
• Sérinngangur, forstofa og hol með skápum
• Hjónaherbergi og barnaherbergi með rúmgóðum skápum
• Nýlegt baðherbergi með hita í gólfi, baðkari/sturtu, opnanlegum glugga og upphengdu klósetti
• Björt borðstofa sem tengir saman eldhús og stofu
• Eldhús með hvítri innréttingu, eikarborðplötu og eyju
• Stofa og fallegur sérsmíðaður hringstigi niður í kjallara
• Flísar í forstofu og baðherbergi, eikarparket á öðrum rýmum·
Kjallari:
• Stórt alrými/sjónvarpshol
• Geymsla með glugga (mögulegt herbergi/vinnuaðstaða)
• Tvö rúmgóð barnaherbergi
• Nýlegt flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti og opnanlegum glugga
• Rúmgott þvottahús með tengi fyrir vélar og innréttingu
• Sérinngangur út í bakgarð
• Innangengt úr þvottahúsi i sameign
• Vínylparket á gangi, barnaherbergjum og þvottahúsi. Flísar á baðherbergi, sjónvarpsholi og geymslu/vinnuaðstöðu.
Stúdíóíbúð (bílskúr):
• Huggulegt alrými með eldhúsi, borðkrók og góðu skápaplássi
• Svefn- og stofurými
• Rúmgott flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti, opnanlegum glugga og þvottavélartengingu
• Gólfhiti og handklæðaofn
• Býður uppá góða tekjumöguleika
• Gólf er flotað og lakkað með glæru lakki
Lóð og garður:
Nýr stór sólpallur (43 fm) með þakskyggni
Skólp- og frárennslislagnir nýlega endurnýjaðar
Löng innkeyrsla með plássi fyrir allt að 5 bíla
Tesla hleðslustöð
Skjólgóður og gróðursæll garður
Köld geymsla undir tröppum
Umhverfi:
Grundargerði er ein af földu perlum Smáíbúðahverfisins.
• Róleg gata og fjölskylduvænt umhverfi
• Beint aðliggjandi almenningsgarði með leiktækjum og gönguleiðum
• Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu
• Góðar almenningssamgöngur, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
Helstu endurbætur síðustu ár:
• 2025: Nýr sólpallur, þak og þakskyggni á bílskúr, endurnýjaðar frárennslis- og skólplagnir, nýtt grindverk, nýtt vínylparket á jarðhæð
• 2024: Baðherbergi á jarðhæð endurnýjað
• 2020: Baðherbergi á aðalhæð endurnýjað
• 2016–2019: Stúdíóíbúð útbúin í bílskúr, eign sameinuð, nýir gluggar, hitalagnir í gólfum
Nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6605312, tölvupóstur halldor@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.