Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

1267

svg

1009  Skoðendur

svg

Skráð  23. sep. 2025

fjölbýlishús

Breiðvangur 24

220 Hafnarfjörður

76.500.000 kr.

652.730 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2073963

Fasteignamat

66.250.000 kr.

Brunabótamat

57.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
117,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Elka Guðmundsdóttir l.gf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir til sölu vel skipulagða og bjarta 5 herbergja íbúð á 1. hæð við Breiðvang 24 í Hafnarfirði.
Birt stærð: 117,2 fm, þar af sérgeymsla í sameign: 8,2 fm - Eignin skiptist í anddyri, eldhús, þvottahús/búr, stofu, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi og baðherbergi.
Fjölbýlishúsið hefur undirgengist miklar framkvæmdir á síðustu árum og engar framkvæmdir fyrirhugaðar.
Vel staðsett fjölskylduíbúð í góðu barnvænu hverfi.
---- Ath að íbúðin er í útleigu í dag og gæti selst með góðum leigusamningi ----
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing eignar:
Anddyri
: Dúkur á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Dúkur á gólfi, gott skápa- og borðpláss. Helluborð með gufugleypi, ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur með glugga.
Þvottahús: Innaf eldhúsi. Gott hillu- og borðpláss, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur og opnanlegur gluggi.
Stofa: Björt og opin með stórum gluggum. Dúkur á gólfi. Útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi, góðu skápaplássi og útgengi út á svalir.
Herbergi 2: Rúmgott, dúkur á gólfi.
Herbergi 3: Dúkur á gólfi.
Herbergi 4: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta með hertu glerskilrúmi, upphengt salerni, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign, 8,2 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg í sameign.

Framkvæmdir og viðhald:
Húsið hefur verið mikið endurbætt á árunum 2021–2024:
2024: Skipt um þakjárn og rafmagnstafla í kjallara endurnýjuð.
2022–2024: Múr- og sprunguviðgerðir á húsi, húsið málað að utan og tréverk yfirfarið.
2022: Endurnýjuð svalahurð í stofu, gler og opnanleg fög í íbúð á norðurhlið skipt út.

Eignin stendur á fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Engidalsskóli og leikskólinn Álfaberg eru á næstu lóð, auk þess sem nokkrir leikskólar eru í göngufæri.
Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á góðum stað í Hafnarfirði í góðu fjölbýlishúsi. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Elka Guðmundsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. sep. 2024
65.150.000 kr.
71.300.000 kr.
10101 m²
7.059 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ