Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
193,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 29. september 2025 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 29. september frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæja kynnir: Glæsilegt 193,9 m2 endaraðhús á tveimur hæðum og innbyggðum bílskúr við Efstalandi 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 193,9 m2, þar af raðhús 165,3 m2 og bílskúr 28,6 m2 að auki er sólskáli sem ekki er í fermetra tölu eignarinnar.
Eignin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, sjónvarpshol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö baðherbergi, þvottahús, sólskála og bílskúr. Fallegar innréttingar og gólfefni. Mikil lofthæð er á efri hæð hússins og glæsilegt útsýni. Stórar svalir með heitum potti. Stórt steypt bílaplan með hitalögn framan við húsið. Ca. 10 m2 sólskáli er á hellulagðri verönd austan við húsið sem er ekki í fermetratölu eignarinnar, auk þess er geymsluskúr í bakgarði eignarinnar.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi. Innangengt er í bílskúr úr forstofu. 
Þvottahús er flísalagt og með innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi. Úr sjónvarpsholi er gengið inn í rúmgóðan sólskála, sem ekki er inni í fermetratölu eignarinnar. 
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
​​​​Baðherbergi nr. 1 er með viðarinnréttingu, vegghengdu salerni og 'walk in' sturtu.

Efri hæð:
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum parketi á gólfi og fallegu útsýni. Útgengt er út á stórar hellulagðar svalir með heitum potti og "grillhúsi". 
Eldhús er með hvítri U-laga innréttingu með gas helluborði, tveimur ofnum og borðplötu úr steini. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi nr. 2 er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, hvítri innréttingu og flísalögðum sturtuklefa með öryggisgleri.  Útgengi er út á svalir úr baðherberginu, 
Svefnherbergi nr. 4 (Hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataherbergi. Innangengt er á baðherbergi nr. 2 úr hjónaherberginu.

Bílskúr er flísalagður og með rafmangsopnun á innkeyrsluhurð. Er skráður 28,6 m2. Úr bílskúr er gengið út á hellulagðaverönd í norðurátt með geymsluskúr.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 133.700.000,-

Verð kr. 149.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. jún. 2021
74.750.000 kr.
104.600.000 kr.
193.9 m²
539.453 kr.
30. ágú. 2016
7.340.000 kr.
61.900.000 kr.
193.9 m²
319.237 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ