Lýsing
Húsaskjól og Ásdís Rósa lögfræðingur og löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega 147,6 fm útsýnisíbúð við Heiðarhjalla 21 í Kópavogi. 3 svefnherbergi, sérinngangur, bílskúr og 180 gráðu útsýni.
Fasteignamat 2026 verður: 101.750.000.-
*** SÖLUSÝNING: HEIÐARHJALLI 21, ÞRIÐJUDAGINN 30. SEPTEMBER 2025 KL 17:00-17:30. ÁSDÍS RÓSA ÁSGEIRSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: +3548957784 EÐA EMAIL: ASDISROSA@HUSASKJOL.IS ***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Heiðarhjalli 21.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Gengið er inn í húsið að ofanverðu og er hiti í uppkeyrslu og plani.
Komið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu með skápum og glerhurð.
Hjónaherbergi er með parketi og skápum.
Baðherbergi er einstaklega fallegt og nýlega endurnýjað og vandað. Hönnuður Alfa Freysdóttir á Grafit.is. Innréttingar eru sérsmíðaðar og gott skápapláss. Walk in sturta, handklæðaofn og gluggi á baðherbergi.
Eldhús er rúmgott með innréttingu í L og góðu skápaplássi, mikil lofthæð og magnað útsýni.
Stofan er björt með mikilli lofthæð og útsýni ,gengið út á góðar svalir með 180 gráðu útsýni til suðurs.
Yfir hluta af stofu er háaloft sem nýtist fyrir krakka (svefnloft)
Barnaherbergin eru 2 með parketi og skápum.
Þvottahús er með innréttingu og vask, gluggi er á þvottahúsinu.
Útisvæði er gróðursælt og fallegt.
Bílskúrinn er nr 2 í röðinni og er með rafdrifinni hurð, flísalagður og með heitu og köldu vatni og vaski.
Hér er hátt til lofts og vítt til veggja og útsýnið óviðjafnanlegt.
Stutt er í skóla, leikskóla og frábært útivistarsvæði og Himnastigann fyrir styrktarþjálfun.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 8957784
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði