Opið hús: Ferjuvað 1, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 30. september 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Fasteignamat 2026 er 62.850.00 kr. Íbúðinni fylgir geymsla 7,3 m2. Húsið er steinsteypt og byggt árið 2013
Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús !
Nánari lýsing;
Anddyri er flísalagt með stórum fataskáp.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi og innfelldum skápum.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Gluggi er á þvottaherberginu og skolvaskur í innréttingu.
Stofa er björt með parketi. Gengið er beint út á 40 fm pall sem snýr í suður og er afgirtur með hliði.
Eldhús með parketi á gólfi, eikar innréttingu og eldhústækjum úr stáli. Opið er frá eldhúsinu yfir í stofu.
Hjónaherbergi með parketi og skápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari, innréttingu og skápum.
Hjólageymsla er í sameign hússins.
Geymsla fylgir íbúðinni.
Hunda- og kattahald er leyft í húsinu skv. húsreglum.
Mjög áhugaverð eign í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, útisvæðið, sem og alla helstu þjónustu og verslanir. Svæðið er sérstaklega hentugt fyrir fjölskyldufólk með frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og fjölbreytta útivistarmöguleika í kringum Norðlingaholt.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is eða síma 867-3040
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.