Lýsing
Vert er að skoða þetta glæsilega raðhús með góðu útsýni yfir Garðabær og átt að Snæfellsnesi.
Hulda Ósk Baldvinsdóttir löggiltur fasteignasali hjá Garði fasteignasölu kynnir:
Rúmgott og bjart 3ja herbergja raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á eftirsóttum stað í Garðabæ með glæsilegu útsýni.
Stutt er í alla þjónustu
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls: 108,7 fm., þar af er 19,3 fm bílskúr. Að auki er lítil geymsla sem er ekki inni í fermetratölu eignarinnar og úti geymsla.
Nánar um eignina:
Efri hæð:
Forstofa/anddyri er með flísum á gólfi og svörtum fataskápum.
Eldhús er opið inn í stofu, svört innrétting með eikar borðplötu og hvítum flísum á vegg. Gegnheilt parket á gólfi.
Gestasalerni er með hvítum flísum á gólfi og hvítri innréttingu.
Stofa /borðstofa með stórum gluggum sem gefa inn góða birtu og fallegt útsýni, gegnhelt parket á gólfum.
Hringstigi er á milli hæða. Stiginn er svartur með eikarþrepum.
Neðri hæð:
Sjónvarpsherbergi/miðrými er með gegnheilu parketi. Innangegnt er þaðan í öll önnur rými hæðarinnar.
Hjónaherbergi rúmgott og bjart með mjög góðu skápaplássi og parket á gólfi. Útgengt er þaðan um svaladyr út á sér afnotarétt/garð hússins.
Barnaherbergi er bjart með stórum gluggum
Baðherbergi baðkar með sturtuaðstöðu, góð innrétting og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan baðherbergis.
Bílskúr:
Bílskúr rúmgóður 19,3 fm. með heitu og köldu vatni.
Geymsla íbúðar er á jarðhæð hússins og er ekki inn í ferrmetratölu eignarinnar.
Hellulagður afgirtur sérafnotaréttur er fyrir framan sérinngang hússins.
Nýlega yfirfarið þak (árið 2017), þar sem skipt var m.a um þakjárn, þakpappa og túður.
Húsið var tekið í geng múrviðgert og málað að utan síðasta sumar
Eignin er einstaklega vel staðsett, stutt í alla þjónustua og göngufæri í skóla og leikskóla.
Rólegt og fallegt hverfi.
Getur verið laus fljótlega
Starfsmaður Garðs fasteignasölu er tengdur eigninni.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður