Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
149,6 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Hjólastólaaðgengi
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 1. október 2025
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Dugguvogur 7, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 01 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 1. október 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega rúmgóð og falleg 149,6 fm íbúð á 1. hæð við Dugguvog 7, 104 Reykjavík. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottahús, bílastæði í kjallara og 82 fm sérafnotaréttur fyrir aftan húsið. Aukin lofthæð er í allri íbúðinni sem gefur henni einstakan sjarma. Mögulegt að útbúa fjórða svefnherbergið. Húsið var byggt árið 2021 af Þ.G. Verk. Íbúðin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Gengið er inn í íbúðina af fyrstu hæð, stigalaust aðgengi. Íbúðin er með mikilli lofthæð en það setur mikinn svip á íbúðina. Forstofugangur með skápum. Tvö barnaherbergi, þvottahús og baðherbergi eru á gangi áður en komið er inn í stórt alrými eignarinnar. Parket á öllum gólfum nema votrýmum sem eru flísalögð. Fataskápar í öllum svefnherbergjum.
Opið og bjart eldhús með góðu skápa og vinnuplássi í fallegri hvítri innréttingu. Innbyggð tæki í eldhúsi, ísskápur, frystir og uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð. Stór eyja með spanhelluborði og góðu skúffuplássi. Innrétting í eldhúsi er frá Nobila í Þýskalandi og tæki frá Electrolux. Stórar stofur og borðstofa með útgengi út á pall. Hjónaherbergi er næst alrými mjög rúmgott með góðu skápaplássi og sér baðherbergi með sturtuklefa.
Sér geymsla í kjallara hússins sem er 15,5 fm og þar er einnig mjög hátt til lofts. Sérmerkt bílastæði fyrir íbúðinni í lokuðu bílastæðahúsi. Búið að setja upp hleðslustöð við bílastæði íbúðarinnar. Sameign er teppalögð og mjög snyrtileg. Húsfélag hefur gefið leyfi fyrir dýrahaldi. Svalir eru yfirbyggðar og með aðgengi út í garð, en þar er 82 fm afgirtur sérafnotaréttur og skiptist hann ca til helminga í pall og grasflöt.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. des. 2021
33.150.000 kr.
83.900.000 kr.
149.6 m²
560.829 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025