Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og falleg 102,1 m2, 4ra herbergja horníbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara við Vefarastræti 7-9 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í anddyri, gang stofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar. Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni. Frábær eign á góðum stað í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, leikskóla, almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Anddyri er með parketi á gólfi og fataskáp.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar með parketi á gólfi. Horngluggi setur skemmtilegan svip á stofuna og veitir fallegt útsýni úr rýminu.
Eldhús er með parket á gólfi, fallegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél. Í eldhúseyju milli stofu og eldhúss er blástursofn, helluborð og pláss fyrir lítinn vínkæli.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Útgengt er á svalir til suðurs.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskápum
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi, fataskáp og koju með góðum hirslum undir.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og veggjum, innréttingu, handlaug, 'walk in' sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Í innréttingu er gret ráð fyrir þvottavél/þurrkara.
Geymsla er rúmgóð og innan íbúðar.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Hægt að setja upp hleðslustöð við bílastæðið.
Hjóla- og vagnageymsla stendur á lóð í sér skúr.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2026 er kr. 77.900.000
Verð kr. 81.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.